Málþing til heiðurs Gísla Má Gíslasyni: Vatnalíffræði og náttúruvernd
Askja
Stofa 132
Gísli Már Gíslason, prófessor varð sjötugur í febrúar 2020 og lýkur nú störfum hjá Háskóla Íslands eftir farsælan starfsferil. Að því tilefni er efnt til málþings um störf hans og rannsóknir.
Sérfræðingar og samstarfsfólk Gísla munu á málþinginu fjalla um framlag hans á sviði vistfræði, vatnalíffræði, loftslagsvísinda og náttúruverndar. Erindin munu varpa ljósi á rannsóknir hans í víðara samhengi, fjalla um einstök vistkerfi íslenskra ferskvatna og mikilvægi þess að vernda þau.
Dagskrá
13:00 Ávarp Guðmundar I. Guðbrandssonar umhverfis- og auðlindaráðherra
Vatnalíffræðirannsóknir á Íslandi – Skúli Skúlason og Hilmar J. Malmquist
„Að labba á bússum er lítið mál“ - Sigurður S. Snorrason
Litlar flugur, stórt hlutverk - Þóra Hrafnsdóttir
Lífríki Laxár í 40 ár – Árni Einarsson
Nýlegar rannsóknir á ferskvatnsþörungum – Rakel Guðmundsdóttir og Iris Hansen
Uppruni og landnám vorflugna á Íslandi - Snæbjörn Pálsson
Af vatni, fræðingum og Hengladölum – Jón S. Ólafsson
„Óhætt er að segja að formaður Þjórsárveranefndar taki af öll tvímæli um afstöðu sína“ - Þóra Ellen Þórhallsdóttir
Fundarstjóri verður Lisa A. Libungan.
Boðið verður upp á léttar veitingar á svölum 3 hæðar Öskju að málþingi loknu.
Gísli Már Gíslason, prófessor við rannsóknir í Hengladölum