Skip to main content

Málstofa Guðfræðistofnunar: Kristur. Saga hugmyndar

Málstofa Guðfræðistofnunar: Kristur. Saga hugmyndar - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
5. nóvember 2018 11:40 til 13:00
Hvar 

Aðalbygging

Stofa 229

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Guðfræðistofnunar efnir til málstofu mánudaginn 5. nóvember kl. 11:40 þar sem Sverrir Jakobsson, prófessor í miðaldasögu við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands, fjallar um bók sína Kristur. Saga hugmyndar.

Kristur – Saga hugmyndar fjallar um upphaf rótgróinna hugmynda um Krist, hvernig þær mótuðust og af hverju þær eru svo eðlisólíkar. Rakið er hvernig hið sögulega minni um þessa máttugu persónu tók sífelldum breytingum fyrstu aldirnar. Sögusviðinu er lýst, samfélagi Gyðinga í Palestínu, en einnig hinum stærri heimi sem það tilheyrði, hinum grískumælandi hluta Rómaveldis. Greint er frá því hvernig hugmyndir um Krist tóku á sig staðlaða mynd og af hverju sum rit um ævi hans hlutu almenna viðurkenningu meðan öðrum var hafnað. Að lokum er fjallað um klofning kristinna manna í rétttrúaða og villutrúarmenn sem hefur mótað sögu þeirra.

Sverrir Jakobsson prófessor.

Málstofa Guðfræðistofnunar: Kristur. Saga hugmyndar