Skip to main content

Lög eftir Atla Heimi Sveinsson á Háskólatónleikum

Lög eftir Atla Heimi Sveinsson á Háskólatónleikum - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
24. október 2018 12:30 til 13:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Ágúst Ólafsson, barítón, og Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó, munu flytja lög eftir Atla Heimi Sveinsson við þekkt ljóð eftir Stephan G. Stephansson á Háskólatónleikum þann 24. október næstkomandi. Tvö laganna verða frumflutt á tónleikunum.

Tónleikarnir verða í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands og hefjast þeir kl. 12.30.

Enginn aðgangseyrir er að tónleikunum og allir eru velkomnir.