Skip to main content

Kynferðisútlagar og fyrirmyndarborgarar: Hinsegin fólk og þjóðin á 20. og 21. öld

Kynferðisútlagar og fyrirmyndarborgarar: Hinsegin fólk og þjóðin á 20. og 21. öld - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
24. maí 2024 12:00 til 16:15
Hvar 

Fyrirlestrarsalur Þjóðminjasafns Íslands

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Kynferðisútlagar og fyrirmyndarborgarar er heils dags ráðstefna sem leiðir saman fræðimenn á sviði hinsegin sögu og bókmennta frá Íslandi, Írlandi, Danmörku og Finnlandi. Viðburðurinn er lokaviðburður rannsóknarverkefnisins Frá kynferðisútlögum til fyrirmyndarborgara sem hefur verið starfandi frá árinu 2000 með verkefnisstyrk frá RANNÍS og Rannsóknasjóði Háskóla Íslands. Meðal efnis á ráðstefnunni verða málstofur um hinsegin bókmenntir á Norðurlöndum og Írlandi, hinsegin aktívismi og réttindabarátta á Norðurlöndum og nýjar stefnur í hinsegin sögu- og bókmenntarannsóknum.

Ráðstefnan fer fram í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands á ensku. Fyrirlestrarsalurinn er aðgengilegur fólki með hreyfihömlun. Boðið verður upp á táknmálstúlkun ef eftir því er óskað (vinsamlega hafið samband við irisel@hi.is eða flora@hi.is)

Dagskrá:

12.00-12.05 Málþingið sett

12.05-13.45 Hinsegin aktívismi í (þver)þjóð(ernis)legu ljósi
Peter Edelberg, Kaupmannahafnarháskóli: Deconstructing the Nation: Transnational Development of LGBT+ Activism in Scandinavia 1948-2021
Hafdís Erla Hafsteinsdóttir, Háskóli Íslands: The public, the private and the homos. The making of the Icelandic homosexual in the 1980s
Þorsteinn Vilhjálmsson, Háskóli Íslands: Killing Joy: Re-Imagining the Nation through Queer Joy at the Reykjavík Pride Parade
Anne Mulhall, University College Dublin: Queer Narratives After Marriage: Trauma, Joy and the Contemporary Irish Queer Memoir

13.45-14.05 Hlé

14.05-15.25 Hinsegin bókmenntir í (þver)þjóð(ernis)legu ljósi
Ásta Kristín Benediktsdóttir, Háskóli Íslands: Queer modernist or mere provoker? Halldór Laxness‘ writings on gender, sexuality and nationality in the 1920s and 30s
Kaisa Ilmonen, Háskólinn í Turku: Intersectional and Transnational Cultural Memory in Michelle Cliff’s Free Enterprise
Anna Rós Árnadóttir, Háskóli Íslands: Frog men, fleeting spaces and the roadless sea: the ocean as queer space in the works of Guðbergur Bergsson

15.30-16.30 Pallborðsumræður: Hvert stefnum við? Framtíð hinsegin sögu og bókmenntarannsókna með þátttöku fræðimanna og aktívista