Skip to main content

Hvað stuðlar að farsælli endurkomu fanga í samfélagið að aflokinni refsivist?

Hvað stuðlar að farsælli endurkomu fanga í samfélagið að aflokinni refsivist? - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
31. janúar 2019 12:00 til 13:00
Hvar 

Háskólatorg

101

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Dr. Francic Pakes, prófessor í afbrotafræði við University of Portsmouth

Hver er reynsla Breta, Hollendinga og Norðmanna  af endurhæfingu og endurkomu fanga í samfélög eftir refsivist? Hvað skiptir þar máli eigi árangur að nást? Dr. Francis Pakes prófessor í afbrotafræði við University of Portsmouth mun flytja inngangsfyrirlestur um málefnið, auk þess sem hann mun ræða reynslu sína af dvöl í tveimur opnum fangelsum á Íslandi. 

Á fyrirlesturinn er sérstaklega boðið fulltrúum frá Fangelsismálastofnun - Sólveig Fríða Kjærnested, sviðsstjóri meðferðarsviðs, Dómsmálaráðuneyti - Kristín Einarsdóttir lögfræðingur, Vernd fangahjálp – Þráinn Farestveit, framkvæmdastjóri Verndar, og Afstöðu, samtökum fanga á Íslandi - Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður.

Inngangsfyrirlestur Pakes verður á ensku en aðrir fundarmenn flytja sitt mál á íslensku.

Fundarstjóri: Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félagsfræði.

Fundurinn er haldinn á vegum Rannsóknastofu í afbrotafræði og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands

Dr. Francic Pakes, prófessor í afbrotafræði við University of Portsmouth.

Hvað stuðlar að farsælli endurkomu fanga í samfélagið að aflokinni refsivist?