Skip to main content

Hádegisfundur: Kosningar til sveitarstjórna 2018

Hádegisfundur: Kosningar til sveitarstjórna 2018 - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
17. maí 2018 12:00 til 13:00
Hvar 

Oddi

Oddi 101

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Í tilefni af sveitarstjórnarkosningum 26. maí n.k. stendur Félag stjórnmálafræðinga, í samstarfi við Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála, fyrir hádegisfundi fimmtudaginn 17. maí kl. 12:00-13:00 í Odda 101 í Háskóla Íslands. 

Grétar Þór Eyþórsson prófessor við HA heldur erindið: 
Í aðdraganda Sveitarstjórnarkosninga 2018: Saga, þátttaka, horfur Þar mun hann fara yfir mynstur og tilhneigingar í síðustu kosningum, kjörsókn og kannanir í aðdraganda kosninganna.

Eva Marín Hlynsdóttir, lektor við Stjórnmálafræðideild HÍ verður með erindið:
„Ég er ekki pólitískur og ekki ráðinn þannig inn?“: Upplifun faglegra framkvæmdastjóra sveitarfélaga á hlutverki sínu? Í erindinu verður m.a. velt vöngum yfir kostum og göllum þess að ráða faglegan framkvæmdastjóra og varpað ljósi á ólíkar hugmyndir kynjanna um stöðu sína sem bæjar- eða sveitarstjóri. 

Fundarstjóri er Ólafur Þ. Harðarson, prófessor við stjórnmálafræðideild HÍ.

Allir velkomnir !

Í tilefni af sveitarstjórnarkosningum 26. maí n.k. stendur Félag stjórnmálafræðinga, í samstarfi við Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála, fyrir hádegisfundi fimmtudaginn 17. maí kl. 12:00-13:00 í Odda 101 í Háskóla Íslands. 
Grétar Þór Eyþórsson prófessor við HA heldur erindið: Í aðdraganda Sveitarstjórnarkosninga 2018: Saga, þátttaka, horfur Þar mun hann fara yfir mynstur og tilhneigingar í síðustu kosningum, kjörsókn og kannanir í aðdraganda kosninganna.
Eva Marín Hlynsdóttir, lektor við Stjórnmálafræðideild HÍ verður með erindið:„Ég er ekki pólitískur og ekki ráðinn þannig inn?“: Upplifun faglegra framkvæmdastjóra sveitarfélaga á hlutverki sínu? Í erindinu verður m.a. velt vöngum yfir kostum og göllum þess að ráða faglegan framkvæmdastjóra og varpað ljósi á ólíkar hugmyndir kynjanna um stöðu sína sem bæjar- eða sveitarstjóri. 
Fundarstjóri er Ólafur Þ. Harðarson, prófessor við stjórnmálafræðideild HÍ.
Allir velkomnir !

Hádegisfundur: Kosningar til sveitarstjórna 2018