Skip to main content

Hádegisfundur Almannaheilla og Vaxandi: Samningar í 3ja geiranum – skipulögð framtíð

Hádegisfundur Almannaheilla og Vaxandi: Samningar í 3ja geiranum – skipulögð framtíð - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
12. maí 2021 12:15 til 13:00
Hvar 

Zoom

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Á rafrænum hádegisfundi Almannaheilla, samtaka þriðja geirans og

Vaxandi, miðstöðvar um samfélagslega nýsköpun við Háskóla Íslands

verður umfjöllunarefnið; Samningar í þriðja geiranum – skipulögð

framtíð.

 

Þóra Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Áss styrktarfélags, mun fjalla

um gerð þjónustusamninga hjá almannaheillasamtökum. Þóra hefur

víðtæka reynslu í þriðja geiranum en starfsemi þriðja geirans er án

hagnaðarvonar. Hún hefur einnig samanburð og reynslu af stjórnun hjá einkafyrirtækjum sem og opinberum aðilum. Hún situr og hefur setið í stjórnum fyrirtækja og stofnana og stýrt mörgum þeirra sem

stjórnarformaður.

 

Síðastliðin 20 ár hefur Þóra verið framkvæmdastjóri Áss styrktarfélags sem stofnað var 1958 af foreldrum barna með þroskaskerðingar er vildu breyta stofnanahugsun í þjónustu við fatlað fólk í einstaklingsmiðaðan stuðning með mannréttindi að leiðarljósi. Félagið starfar enn á þessum forsendum.

 

Þóra er með MBA í stjórnun frá HÍ og UD í Iowa USA. Það nám byggði hún á grunni rekstrarstjórnunarnáms frá EHÍ og viðskiptanáms í markaðsfræði og stjórnun frá HÍ. Hún lauk B.S. grunnnámi við HÍ í landafræði með jarðfræði sem aukagrein.

 

Víðtæk og fjölbreytt reynsla Þóru úr íslensku viðskiptalífi hefur

reynst vel í hinum ýmsu störfum, m.a. sem fjármálastjóri MH, markaðsstjóri Landmælinga Íslands, framkvæmdastjóri saltfiskverkunar Útvers, rekstrarstjóri líftæknifyrirtækisins UVS, setið í

verkefnisstjórnum nokkurra þróunar- og uppbyggingarverkefna ásamt því að vera alin upp í sveit á Vestfjörðum og unnið í fiskvinnslu.

Viðburður fer fram á Zoom. Hér er hlekkur á streymi.

Þóra Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Áss styrktarfélags 

Hádegisfundur Almannaheilla og Vaxandi: Samningar í 3ja geiranum – skipulögð framtíð