Skip to main content

Fullveldið í hættu?

Fullveldið í hættu? - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
26. nóvember 2018 17:00 til 18:15
Hvar 

Norræna húsið

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Hefur fullveldi Íslands einhvern tíma verið verulega skert síðan 1918? Er hætta á að Ísland glati fullveldinu í hendur ESB? Hvaða áhrif hefur það á fullveldið ef hluti valdheimilda ríkisins er framseldur annað?

Þátttakendur:

  • Silja Bára Ómarsdóttir dósent í stjórnmálafræði.
  • Finnur Magnússon lögmaður og aðjúnkt í lögfræði.
  • Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur.
  • Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir alþingismaður.

Fundarstjóri: Guðmundur Magnússon, blaðamaður

Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands, Sögufélag og Háskólinn í Reykjavík efna til fundaraðar í nóvember með yfirskriftinni Fullveldi Íslands í 100 ár: Hugsjón og reynd. Tilgangur fundanna er að taka til umræðu fullveldishugmyndina í íslenskum stjórnmálum, þýðingu fullveldis fyrir samfélagsþróun á Íslandi og spurninguna um hvort þrengt hafi verið að fullveldi Íslands á síðustu áratugum.

Fundaröðin tengist útgáfu bókarinnar Frjálst og fullvalda ríki: Ísland 1918–2018 sem kom út 8. nóvember. Sögufélag gefur bókina út í samstarfi við Afmælisnefnd aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands. Í henni eru 10 greinar eftir 13 höfunda, lögfræðinga, sagnfræðinga og stjórnmálafræðinga sem skoða fullveldið frá ólíkum fræðilegum sjónarhornum.

Fundirnir eru þrír og eru haldnir í Norræna húsinu dagana 14., 21. og 26. nóvember kl. 17.00–18.15. Fjórir fræðimenn og stjórnmálamenn flytja stuttar framsögur þar sem fengist er við mikilvægar spurningar um fullveldið í hugsjón og reynd. Á eftir eru almennar umræður.

Frjálst og fullvalda ríki

Fullveldið í hættu?