FRESTAÐ: Ný rannsóknar- og þróunarverkefni — Lýðræðismenntun og frumkvöðlastarf.
Stakkahlíð / Háteigsvegur
K206
Kynnt verða tvö fjölþjóðleg rannsóknar- og þróunarverkefni sem kennarar í Deild menntunar og margbreytileika taka þátt í eða leiða.
Annars vegar kynna Ólafur Páll Jónsson og Ragný Þóra Guðjohnsen verkefnið Sustainability-, Civic- and Character Education in a Pluralistic Democracy: Examining Existing Tensions and Opportunities for Integration. Verkefnið er eitt af ellefu verkefnum sem hlutu þátttökurétt og styrk í alþjóðlegu rannsóknaverkefni á vegum Oklahomaháskóla, sem beinir sjónum að sjálfinu, gildismati og því að vera borgari í samfélagi. Meginmarkmið íslenska verkefnisins er að skoða snertifleti menntunar sem snýr að mennskunni, sjálfbærni og borgaravitund.
Hins vegar kynnir Svanborg R. Jónsdóttir verkefnið Entrepreneurship 360 Network sem hún leiðir í samvinnu við í Belgíu, í Ítalíu, á Spáni og á Englandi. Verkefnið snýst um að þróa notkun og að útbreiða hinn viðamikla hæfniviðmiðarammann EntreComp.
Markmið málstofunnar er tvíþætt: Að kynna áhugasömum verkefnin og að ræða gildi þess að fræðafólk í deildinni taki þátt í fjölþjóðlegum verkefnum.
Kynnt verða tvö fjölþjóðleg rannsóknar- og þróunarverkefni sem kennarar í Deild menntunar og margbreytileika taka þátt í eða leiða.