Skip to main content

Febrúarbrautskráning 2023

Febrúarbrautskráning 2023 - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
17. febrúar 2023 15:00 til 16:30
Hvar 

Háskólabíó

Nánar 
Prófskírteini verða afhent í röð eftir fræðasviðum

Febrúarbrautskráning kandídata frá Háskóla Íslands fer fram í Háskólabíói föstudaginn 17. febrúar kl. 15. Kandídatar fá þá afhent prófskírteini sín við hátíðlega athöfn.

Athöfnin verður einnig í streymi

Kandídötum er ætlað afmarkað svæði og eru beðnir um að mæta ekki síðar en kl. 14. Hver kandídat verður með númerað sæti sem kemur fram á nafnalista sem afhentur verður með dagskrá við innganginn og er sætaskipan í samræmi við afhendingu prófskírteina. Umsjónarfólk verður á staðnum til að leiðbeina um sætaskipan.

Prófskírteini verða afhent í röð eftir fræðasviðum:

  • Félagsvísindasvið
  • Heilbrigðisvísindasvið
  • Hugvísindasvið
  • Menntavísindasvið
  • Verkfræði- og náttúruvísindasvið.

Kandídatar fá rafræn bréf með nánari upplýsingum.

Febrúarbrautskráning kandídata frá Háskóla Íslands fer fram í Háskólabíói föstudaginn 17. febrúar kl. 15. Kandídatar fá þá afhent prófskírteini sín við hátíðlega athöfn.

Febrúarbrautskráning 2023