Efling sjálfbærni og seiglu á Norðurslóðum
Á netinu
Námsbraut í Land- og ferðamálafræði vekur athygli á opinni vefmálstofu á vegum ArticHubs.
Vefmálstofan ber heitið: Efling sjálfbærni og seiglu á Norðurslóðum.
Vakin er athygli á því að viðburðuinn hefst klukkan 10.00 að íslenskum tíma en tímasetningar í dagskrá miða við tíma í Evrópu. (einni klukkustund á undan)
ArticHubs er Evrópuverkefni sem styrkt er af Horizon 2020 áætlun Evrópusambandsins. Alls 22 samstarfsaðilar taka þátt í verkefninu, og fyrir hönd Íslands taka Háskóli Íslands, námsbraut í land- og ferðamálafræði, og Háskólinn á Hólum þátt í því. Rannsóknaverkefni ber yfirskriftina: „Global drivers, local consequences: Tools for global changes adaption and sustainable development of industrial and cultural Artic „hubs“. Í rannsókninni er stuðst við þverfaglegar rannsóknaraðferðir til þess að bera kennsl á og greina hnattræna drifkrafta sem hafa áhrif á lífsviðurværi, menningu og samfélög Norðurslóða. Sérstök áhersla er lögð á að rannsaka sjálfbærni í fiskeldi, skógrækt, ferðamennsku, námuvinnslu og menningu frumbyggja og hvernig efla megi þátttöku heimafólks í ákvarðanatöku um landnýtingu.
Á vefmálstofunni verður rætt um hvaða áhrif þessir hnattrænu þættir hafa á fiskeldi, skógrækt, ferðamennsku og námuvinnslu á Norðurslóðum.
Tengiliður verkefnisins fyrir Háskóla Íslands er Dr. Rannveig Ólafsdóttir, prófessor við líf- og umhverfisvísindadeild.
Hér er hlekkurinn með upplýsingum og slóðina til að skrá sig á málstofuna
Efling sjálfbærni og seiglu á Norðurslóðum