Skip to main content

Café Lingua - Heimsins jól

Café Lingua - Heimsins jól 	 - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
6. desember 2018 17:00 til 18:30
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Café Veröld - jarðhæð

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Hátíðarstemning þar sem Múltíkúltíkórinn og borgarbúar frá öllum heimshornum syngja saman jólalög á ýmsum tungumálum undir stjórn Margrétar Pálsdóttur. 

“Café Lingua – lifandi tungumál” er tungumálavettvangur á vegum Borgarbókasafnsins í samstarfi við ýmsa aðila í samfélaginu. Eitt af markmiðum Café Lingua er að virkja þau tungumál sem hafa ratað til Íslands með fólki hvaðanæva að og auðgað mannlíf og menningu ásamt því að vekja forvitni borgarbúa á heiminum í kringum okkur. Café Lingua er gátt inn í mismunandi tungumála - og menningarheima og tilvalinn vettvangur fyrir þá sem vilja efla tungumálakunnáttu sína og hafa áhuga á að spreyta sig á hinum ýmsu tungumálum. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Facebook viðburður HÉR

Café Lingua

Café Lingua - Heimsins jól