Bráðadagurinn 2022
Auglýst síðar
Bráðadagurinn 2022 verður haldinn föstudaginn 4. mars 2022 og verður yfirskriftin "Bráðaþjónusta fyrir þig – alls staðar“
Bráðadaginn er þverfagleg ráðstefna bráðaþjónustu Landspítala og Rannsóknastofu Landspítala og Háskóla Íslands í bráðafræðum.
Í meðfylgjandi auglýsingu er óskað eftir ágripum um rannsóknir eða verkefni fyrir Bráðadaginn. Æskilegt er að efni rannsókna og verkefna tengist þema dagsins um bráðaþjónustu í fjölbreyttum aðstæðum.
Til að fá sem fjölbreyttasta umfjöllun værum við þakklát fyrir að þið vekið athygli samstarfsfólks ykkar á þessari auglýsingu, með tölvupósti, veggspjöldum eða með kynningu á innri vef ykkar.
Ágrip verða ritrýnd og birt í fylgiriti Læknablaðsins.
Hægt er að skila ágripum í síðasta lagi 30. janúar 2022 Frekari kröfur um uppsetningu ágripa má sjá hér: www.landspitali.is/bradadagurinn
Ráðstefnan er öllum opin og verður auglýst með nánari dagskrá og staðsetningu þegar nær dregur.
Nánari upplýsingar veita:
Ágústa Hjördís Kristinsdóttir, formaður Bráðadagsnefndar, ahjordis@landspitali.is s. 543 7913
Dagný Halla Tómasdóttir, skrifstofustjóri, dagnyht@landspitali.is . 543 8215
Bráðadagurinn 2022 verður haldinn föstudaginn 4. mars 2022 og verður yfirskriftin "Bráðaþjónusta fyrir þig – alls staðar“ Bráðadaginn er þverfagleg ráðstefna bráðaþjónustu Landspítala og Rannsóknastofu Landspítala og Háskóla Íslands í bráðafræðum.