Skip to main content

Starfsáætlun Upplýsingatæknisviðs

Upplýsingatæknisvið uppfærir starfsáætlun sína á hverju ári. Markmiðið er að nýta starfskrafta starfsfólks sem best til að ná þeim markmiðum sem HÍ hefur sett sér í stefnu og um leið ná sem bestu jafnvægi milli mismunandi málefnaflokka í starfseminni. 

Val á því hvaða verkefni eru tekin fyrir og hver ekki, er gert í samráði við fjölda aðila í nokkrum þrepum. Hugmyndum er safnað allt árið, en að hausti er byrjað að velja þau verkefni sem passa best inn á næsta ári miðað við stefnu og stöðu. Fyrir áramót liggur fyrir starfsáætlun með skilgreindum verkefnum sem starfsfólk UTS útfærir og skilar. Áætlunin er samþykkt af rektor. 

A diagram of a diagram of a diagram    Description automatically generated with medium confidence 

Teikningin sýnir í grófum dráttum hvaða ferli er fylgt við gerð starfsáælanna upplýsingasviðs.  Ferlinu er skipt niður í fasa sem útfærðir eru í tiltekinni röð og hver fasi hefur tiltekna þáttakendur. 

Söfnunarfasi 

  • Eigendur hugmynda móta hugmyndir sínar að þjónustum. 

  • Ráðgjafar UTS eru til taks. 

  • Eigendur skrá nauðsynlegar upplýsingar um sínar hugmyndir í þjónustugátt UTS. 

  • Ráðgjafar UTS skoða allar innlagðar hugmyndir og færa til bókar á skipulegan hátt. 

  • Hugmyndafasi er öllum opinn, alltaf 

Síunarfasi 

  • Ráðgjafar UTS útbúa lista hugmynda í hverjum málefnaflokki 

  • Ábyrgðarmenn málaflokkanna skoða þær hugmyndir sem eiga við sinn málaflokk. 

  • Ábyrgðarmenn forgangsraða innan síns málaflokks og velja verkefni til að senda áfram í röðunarfasa. 

  • Ráðgjafar UTS geta aðstoðað við að undirbúa ítarlegri verkefnisskilgreiningar fyrir þær hugmyndir sem ábyrgðarmenn velja. 

Röðunarfasi 

  • Sviðsstjóri UTS ræðir við ábyrgðarmenn málaflokkanna, bæði sér og saman. 

  • Sviðsstjóri UTS ræðir við forseta fræðasviða. 

  • Sviðsstjóri UTS ræðir við rektor. 

  • Viðræður innihalda stöðumat, þar sem skoðuð eru verkefni sem lokið er, þau sem eru í gangi og þau sem komust gegnum fyrstu síu. 

  • Niðurstöður viðræðna ráða því hvaða verkefni komast á verkefnaskrá, og hver ekki. 

  • Ráðgjafar UTS geta aðstoða við að búa til fullgildar verkefnisheimildir fyrir þær hugmyndir sem komast á verkefnaskrá. 

  • Í verkefnisheimild eru tilteknar þær afurðir sem á að skila og er hún samþykkt af eiganda og UTS. 

  • Sérfræðingar UTS umfangsmeta verkefnin og það getur leitt til þess að verkefnaskrá hnikist til 

  • Röðunarfasa lýkur fyrir áramót. 

Útfærslufasi 

  • Sérfræðingar UTS skoða allar samþykktar verkefnaheimildir. 

  • Sérfræðingar UTS gera verkáætlanir, raða saman tíma og mannskap. 

  • Sérfræðingar UTS útfæra verkefnin samkvæmt skilgreindu samþykktu ferli. 

  • Sérfræðingar UTS ljúka verkefnum samkvæmt verkefnisheimild. 

Skilafasi 

  • Sérfræðingar UTS skila og innleiða þær afurðir sem verkefnaheimildir tilgreina. 

  • Verkefni sem ekki klárast eru tekin upp í næsta síunarfasa