Veröld hafsins: frá fiskabúrum til hvalveiða
Veröld - Hús Vigdísar
Auðarsalur
Veröld hafsins: frá fiskabúrum til hvalveiða
Fyrirlesarar: Gísli Pálsson og Kristín Ingvarsdóttir
Auðarsal, Veröld – húsi Vigdísar, 9. nóvember kl. 16.30-17.30
Gísli Pálsson: Fiskabúrið og mannöldin
Í fyrirlestrinum fjallar Gísli um hugmyndir fólks um fiskabúr bæði á Viktoríutímanum, um miðja nítjándu öld, og nú á tímum. Hann veltir fyrir sér að hve miklu leyti fyrstu fiskabúrin (stofustáss á breskum heimilum og náttúrugripasöfnum) eigi samleið með úthöfum Jarðar.
Kristín Ingvarsdóttir: Hvalveiðar Íslendinga og Japana – sameining og sundrung
Í fyrirlestrinum fjallar Kristín um hvalveiðar Íslendinga og Japana fyrr og nú. Rætt verður um áhrif veiðanna á samskipti landanna og stöðu hvalveiða á tímum þegar umhverfisvitund fer vaxandi á heimsvísu.
Veröld hafsins: frá fiskabúrum til hvalveiða