Strjálar framsetningar til að stöðva skógarelda
Háskólabíó, Salur 3
Námsbraut í tölvunarfræði býður á opinn gestafyrirlestur, fimmtudaginn 24. júní klukkan 11:30.
Gestafyrirlesari: Þorsteinn Hjörtur Jónsson, CTO hjá EthicalAI í Toronto, Kanada.
Titill erindis: Strjálar framsetningar til að stöðva skógarelda
Nánar: Gífurlegir skógareldar hafa geisað um Ástralíu og Suð-vestur Bandaríkin á miklum þurrka tímum síðastliðin ár. Til að stemma stigu við þessu kynnum við lausn sem byggist á notkun flygilda og hágæða myndavéla. Í fyrirlestrinum verður farið yfir aðferðir sem byggja á notkun strjálla framsetninga til að smíða skilvirka metla með djúpum tauganetum.
Með slíkum metlum gefst kostur á að leysa verkefnið í rauntíma, og þar með gera flygildi sjálfvirk.
Fyrirlesturinn fer fram í sal þrjú í háskólabíói.
Félag Tölvunarfræðinga býður upp á veitingar að viðburði loknum.
Þorsteinn Hjörtur Jónsson, CTO hjá EthicalAI í Toronto, Kanada.