Frestað - Þjóðfélagsfræði í 50 ár
Háskólatorg
HT-102
Viðburðinum hefur verið frestað um óákveðinn tíma.
Haustið 1970 var Námsbraut í almennum þjóðfélagsfræðum stofnuð við Háskóla Íslands. Í námsbrautinni voru kenndar þrjár greinar, félagsfræði, mannfræði og stjórnmálafræði. Í tilefni tímamótanna er efnt til hátíðardagskrár á Háskólatorgi 13. nóvember 2020. Þar verða stutt erindi um sögu og mikilvægi þjóðfélagsfræða á Íslandi og frumkvöðlar þjóðfélagsfræðanna á Íslandi heiðraðir. Að lokinni dagskrá verður opnuð sýning þar sem varpað verður ljósi á atburði úr sögu greinanna í máli og myndum.
Dagskrá
16.00 Setning: Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, prófessor, fundarstjóri.
Stutt erindi:
- Landnám þjóðfélagsfræða við Háskóla Íslands. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands og prófessor
- Félagsfræði í 50 ár. Þórólfur Þórlindsson, prófessor emeritus
- Mannfræði í 50 ár. Gísli Pálsson, prófessor emeritus
- Stjórnmálafræði 50 ár. Ólafur Þ. Harðarson, prófessor
- Ný blóm spretta. Rannveig Traustadóttir, prófessor emerita
Ávarp: Jón Atli Benediktsson rektor
Fyrstu kennarar í þjóðfélagsfræðum heiðraðir: Haraldur Ólafsson, Ólafur Ragnar Grímsson og Þorbjörn Broddason.
Jafnframt verður Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir heiðruð fyrir áralangt starf í þágu félagsvísinda við skólann.
Opnun sýningar á Háskólatorgi um upphaf og þróun þjóðfélagsfræða
Léttar veitingar
Aðalbygging Háskóla Íslands, mynd tekin árið 1969. Myndasafn Háskóla Íslands.