Loftslagið og samtal kynslóðanna
Stakkahlíð / Háteigsvegur
Bratti
Feðginin Eir Ólafsdóttir, menntaskólanemi og tónlistarkona, Ólafur Páll Jónsson, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, og hljómsveitin Ateria fjalla um yfirvofandi loftslagshamfarir í tali og tónum. Meðal þess sem þau munu ræða er þurrðardagur jarðar, loftslagskvíði, slakt læsi þeirrar kynslóðar sem nú situr við stjórnvöl þjóðfélagsins og svo hvað þetta segi okkur um gæði íslenska menntakerfisins og annarra menntakerfa á Vesturlöndum.
Loftslagshamfarir — hlutverk menntakerfisins er ný fyrirlestraröð sem hefur það markmið að veita nemendum og kennurum Háskólans og starfsfólki víðsvegar í menntakerfinu innblástur, skapa umræður og vera uppspretta lærdóms.
Fyrirlestrarnir munu fjalla um umhverfismál og menntun í víðum skilningi, matarsóun og ábyrga neysluhætti, stjórnkerfið, náttúruvernd og vistvæna framtíð, samtal kynslóðanna og samfélagslega þátttöku, áhrif loftslagsbreytinga á samfélög og afleiðingar þeirra.
Dagskráin er sem hér segir:
Fyrirlestrarnir eru haldnir að jafnaði á mánudögum frá kl. 15.00-15.50 í Bratta í húsnæði Háskóla Íslands í Stakkahlíð.
16. mars
Stjórnum við þróuninni? Sköpum vistvæna framtíð
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Helena Óladóttir, aðjúnkt við Menntavísindasvið.
30. mars
Hvað getum við gert? Breytum til hins betra!
Sævar Helgi Bragason, stjörnufræðingur og umsjónarmaður þáttanna Hvað höfum við gert? á RÚV, og Anna Sigríður Ólafsdóttir, prófessor við Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda.
Menntavísindasvið Háskóla Íslands hrindir af stað nýrri fyrirlestraröð um loftslagshamfarir og hlutverk menntakerfisins.