Nýnemadagar
Hvenær
5. september 2019 10:00 til 14:00
Hvar
Háskólatorg
Nánar
Öll velkomin
Dagskrá nýnemadaga fimmtudaginn 5. september.
- Meðlimir Háskóladansins taka sporið og kynna starfssemi sína kl. 12
- Upplýsingaborð fyrir nýnema á Háskólatorgi opið frá kl. 10-14
Í tengslum við Nýnemadaga er efnt til spurningarleiks á Uglunni en hægt er að taka þátt í honum fram til kl. 13 föstudaginn 6. september og dregið úr réttum svörum kl. 14 þann dag. Glæsilegir vinningar í boði:
- Tvöþúsundkróna gjafabréf í Stúdentakjallarann (tveir vinningar í boði FS).
- 100 eininga prentkvóta (þrír vinningar í boði UTS).
- Fjölnota bolli í boði verkefnastjóra sjálfbærni- og umhverfismála.
- Áhugakönnun eða námskeið að eigin vali að verðmæti 6.000-8.000 kr. í boði Náms- og starfsráðgjafar.
- Óvæntur vinningur úr Kaupfélagi stúdenta (tveir vinningar í boði FS).
- Margnota bókapoki í boði Landsbókasafns Íslands.
- Grænt kaffikort og fjölnota drykkjarmál frá Hámu og Kaffistofum stúdenta (fjórir vinningar í boði FS).
- Háskólapeysur (þrjár peysur í boði Markaðs- og samskiptasviðs).
Bendum nýnemum á Nýnemavefinn sem er stútfullur af ítarlegum upplýsingum um háskólasamfélagið, fyrstu skrefin í HÍ og þjónustu, einnig leiðbeiningar fyrir nýnema, fróðleikur og margt fleira.
Myndband frá nýnemadögum 2018.
Samfélagsmiðlar
Endilega fylgist með Háskóla Íslands á Instagram.
Einnig má fylgjast með Háskólanum á Facebook, Twitter og YouTube.
Skemmtiatriði verða á sviðinu á Háskólatorgi í hádeginu á nýnemadögum, m.a. tónlist, dans og kórsöngur.