Menntun til framtíðar - Ráðstefna um rannsóknir og nýbreytni í framhaldsskólum
Fjölbrautarskólinn í Breiðholti
Haldin í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti föstudaginn 20. september 2019 kl. 12.30-17.30.
Að ráðstefnunni standa: Félag framhaldsskólakennara, Félag stjórnenda í framhaldsskólum, Skólameistarafélag Íslands, Samtök áhugafólks um skólaþróun, Námsbraut Háskóla Íslands um kennslufræði framhaldsskóla, og Rannsóknarstofa um þróun skólastarfs.
Dagskrá:
12:00 Opnað fyrir móttöku ráðstefnugesta
12.30 Ráðstefna sett – ávörp
12.45-13.30 Berglind Rós Magnúsdóttir dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands flytur lykilerindið “Allir í fjölskyldunni hafa farið í þennan skóla nema ég”: Skólaval, sjálfsmyndarsköpun og áskoranir nemenda í framhaldsskólum í borginni og á landsbyggðinni.
Í erindinu verður sagt frá rannsókn á því hvernig ungir Íslendingar nota framhaldsskólakerfið til sjálfsmyndarsköpunar, hópamyndunar og aðgreiningar (stéttir).
13.30-13.45 Fyrirspurnir til fyrirlesara
13.45-14.15 Kaffihlé
14.45-16.30 Málstofur
16.30-17.30 Ráðstefnuslit – léttar veitingar og spjall
Ráðstefnugjald er 2.500 kr. og þurfa gestir að skrá sig á www.skolathroun.is