Nýjar rannsóknir í fornleifafræði: Skálinn á Parti í landi Auðkúlu
Þjóðminjasafn
Margrét Hrönn Hallmundsdóttir flytur fyrirlesturinn Skálinn á Parti í landi Auðkulu í fyrirlestraröðinni Nýjar rannsóknir í ísenskri fornleifafræði.
Fyrirlesturinn verður haldinn í sal Þjóðminjasafns Íslands 23. janúar kl. 12-13.
Nýjar rannsóknir í íslenskri fornleifafræð er fyrirlestraröð Félags fornleifafræðinga, námsbrautar í fornleifafræði við Háskóla Íslands og Þjóðminjasafns Íslands.
Um erindið
Undanfarin ár hafa staðið yfir rannsóknir á skálanum á Parti í landi Auðkúlu í tengslum við rannsóknina Arnarfjörður á miðöldum. Síðasta sumar var tekið ofan af öllum skálanum og kom í ljós að hann er 23 m á lengd og því stærsti skáli sem rannsakaður hefur verið á Vestfjörðum. Járnvinnsla hefur verið stunduð á jörðinni á 10. öld og þar hefur líklega verið lítið bænahús. Farið verður yfir stöðu rannsókna á skálanum á Parti í landi Auðkúlu sem og fjallað um rannsóknir á öskuhaug sem fram fóru í ár samhliða rannsókninni á skálanum.
Næstu fyrirlestrar í röðinni
- 30. janúar. Steinunn Kristjánsdóttir. Þingeyrar. Valdamiðstöð í Húnaþingi
- 6. febrúar. Orri Vésteinsson. Hag(a)fræði víkingaaldar. Dæmi úr Hrísey
- 13. febrúar. Ragnheiður Traustadóttir. Bessastaðir og Lambhús. Fornleifarannsókn haustið 2018
- 20. febrúar. Guðrún Alda Gísladóttir og Mjöll Snæsdóttir
Kambar. - 27. febrúar. Birna Lárusdóttir og Howell Magnus Roberts
Ólafsdalur: Uppgröftur, landslag og framtíðarsýn - 6. mars. Sólveig Beck. Handkvarnir og hagleikur: Viðtaka nýjunga í íslensku bændasamfélagi í lok 18.aldar.
- 13. mars. Hildur Gestsdóttir. Ísótóparannsóknir á Ingiríðarstöðum.
- 20. mars. Sólrún Inga Traustadóttir. Fornar rætur Árbæjar. Framvinda rannsóknar í Árbæ, Reykjavík.
- 27. mars. Ragnheiður Gló Gylfadóttir. Þjórsárdalur. Skráning fornminja úr lofti.
- 3. apríl. Lísabet Guðmundsdóttir. Viðarnýting norrænna manna á Grænlandi.
- 10. apríl. Kristborg Þórsdóttir. Oddarannsóknin: Fundinn manngerður hellir frá 10. öld í Odda á Rangárvöllum.
- 24. apríl. Angelos Parigoris. „Forgive them, for they know not what they do“. Some notes on the alternative uses of books, and the decolonization of Icelandic manuscripts.
- 8. maí. Ágústa Edwald Maxwell. Mjólk í mat og ull í fat. Verkmenning kvenna á seinni hluta 19. aldar.
- 15. maí. Elin Sundman. The perfect body: A case study of clerical masculinites and male bodies in late medieval Iceland.
Margrét Hrönn Hallmundsdóttir.