Innsetningarathöfn Egill Skúlason
Askja
Stofa 132
Egill Skúlason hefur hlotið framgang í stöðu prófessors í efnaverkfræði við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands.
Í tilefni þess verður haldin hátíðleg athöfn þar sem hann heldur tölu og fer yfir farinn veg.
Titill erindis: Rational electrocatalyst design towards a sustainable future
Dagskrá:
- Setning.
- Rational electrocatalyst design towards a sustainable future (Kerfisbundin hönnun rafefnahvata fyrir sjálfbæra framtíð) -Egill Skúlason, prófessor
- Lokaorð.
Athöfnin tekur um það bil eina klukkustund og fer fram á ensku.
Sigurður Magnús Garðarsson, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs, stýrir athöfninni.
Boðið verður upp á léttar veitingar að athöfn lokinni.
Vinsamlegast skráið ykkur til þátttöku.
Egill Skúlason