Skip to main content

Dönsk-íslensk hönnun - málþing og sýning

Dönsk-íslensk hönnun - málþing og sýning - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
29. nóvember 2018 14:00 til 17:25
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Fyrirlestrarsalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum stendur fyrir málþingi og sýningu á dansk-íslenskri hönnun í tilefni af 100 ára afmæli fullveldis Íslands, í samvinnu við Epal og sendiráð Dana á Íslandi. Viðburðurinn er hluti af dagskrá aldarafmælis fullveldis Íslands og styrktur af afmælisnefnd og danska menningarmálaráðuneytinu. 

Dagskrá málþings: 

14.00-14.05  Auður Hauksdóttir, prófessor í dönsku: Ávarp
14.05-14.15  Eva Egesborg Hansen, sendiherra Dana: Setning
14.15-14.30  Kristján Garðarsson arkitekt: Dönsk hönnun í Veröld – húsi Vigdísar
14.30-15.00  Hans Henrik Sørensen, stjórnarformaður Onecollection: Finn Juhl og hans møbler – en glædesrejse.
15.00-15.30  Æsa Sigurjónsdóttir, dósent í listfræði: Sigurjón Ólafsson og Finn Juhl – hugarflug milli höggmyndar og hönnunar.

15.30-16.00 Léttar veitingar í boði sendiráðs Dana á Íslandi

16.00-16.30  Arndís Árnadóttir hönnunarsagnfræðingur: Sveinn Kjarval og tengsl hans við danska hönnun 
16.30-16.55  Hee Welling og Guðmundur Lúðvík Grétarsson arkitektar hjá Welling/Ludvik: Dansk-islandsk møbeldesign.
16.55-17.25  Sigurður Einarsson, arkitekt: Dönsk-íslensk hönnun og samvinna um tónlistarhúsið Hörpu. 

Þátttakendum gefst tækifæri til að skoða hönnunarmuni í Veröld – húsi Vigdísar, m.a. húsgögn hönnuð af Finn Juhl og stóla Sveins Kjarvals. Auk þess verður komið upp lítilli sýningu á munum eftir danska og íslenska hönnuði. 

Dönsk-íslensk hönnun - málþing og sýning

Dönsk-íslensk hönnun - málþing og sýning