Lærum með leiðtogum - Ólafur Stefánsson: Að vernda ímyndunarafl og túlkun nemenda
Stakkahlíð / Háteigsvegur
Bratti
Annar leiðtoginn í fyrirlestraröðinni Lærum með leiðtogum er Ólafur Stefánsson, fyrrum landsliðsmaður í handbolta. Óli er heilinn á bakvið kennsluhugbúnaðinn KeyWe fyrir nemendur og kennara, en KeyWe er hugmyndahvetjandi rafræn stílabók. Fyrirlestur Óla fjallar um mikilvægi þess að beina sjónum okkar að forhugmyndum grunnskólanemenda, túlkun og ímyndunarafli.
Um fyrirlestraröðina
Lærum með leiðtogum er heiti á nýrri fyrirlestraröð sem Menntavísindasvið Háskóla Íslands stendur fyrir skólaárið 2018-2019.
Sex leiðtogar munu heimsækja okkur og eru fyrirlestrarnir haldnir að jafnaði á miðvikudögum í hádeginu frá kl. 12.10-12.50 í Bratta.
Allir fyrirlesarar eiga það sameiginlegt að vera leiðtogar og brautryðjendur á ólíkum sviðum samfélagsins. Þau munu segja frá verkefnum sínum og ekki síst miðla sínum persónulega lærdómi af því að takast á við áskoranir. Fyrirlestrarnir munu fjalla um menntun, hreyfingu, andlega líðan, kvikmyndir, jafnrétti og eitraða karlmennsku, markmiðasetningu, samskipti, ímyndunaraflið og samfélagslega þátttöku.
Lærum með leiðtogum hefur það markmið að veita nemendum og starfsfólki Háskólans innblástur, skapa umræður og vera uppspretta lærdóms. Menntavísindasvið býður einum framhaldsskóla á hvern viðburð til að mynda betri tengsl og byggja brýr milli skólastiga.
DAGSKRÁ
24. október
400 kílómetrar af ástríðu og áskorunum
Elísabet Margeirsdóttir, hlaupari og aðjúnkt við Menntavísindasvið
14. nóvember
Að vernda ímyndunarafl og túlkun nemenda – Ólafur Stefánsson, fyrrum landsliðsmaður í handbolta og stofnandi KeyWe
16. janúar
Hvernig segjum við sögur ungs fólks? – Baldvin Z, kvikmyndagerðarmaður og leikstjóri
23. janúar
Framtíðarleiðtogar – Alda Karen Hjaltalín, framkvæmdastjóri AK Consultancy og fyrirlesari
13. febrúar
Verum #huguð – Kristín Hulda Gísladóttir, sálfræðinemi við Háskóla Íslands og formaður Hugrúnar, geðfræðslufélags háskólanema
6. mars
Leikreglur karlmennskunnar – Þorsteinn V. Einarsson, stofnandi og ritstjóri #karlmennskan á samfélagsmiðlum, kennari og fyrrum starfsmaður félagsmiðstöðva
Athugið að dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar. Fyrirlestrar verða teknir upp og birtir á YouTube-rás Menntavísindasviðs Háskóla Íslands.
Verið öll velkomin!
Annar leiðtoginn í fyrirlestraröðinni Lærum með leiðtogum er Ólafur Stefánsson, fyrrum landsliðsmaður í handbolta. Óli er heilinn á bakvið kennsluhugbúnaðinn KeyWe fyrir nemendur og kennara, en KeyWe er hugmyndahvetjandi rafræn stílabók. Fyrirlestur Óla fjallar um mikilvægi þess að beina sjónum okkar að forhugmyndum grunnskólanemenda, túlkun og ímyndunarafli.