Móttaka nýnema
Stakkahlíð / Háteigsvegur
Móttaka nýnema Menntavísindasviðs verður haldin mánudaginn 27. ágúst nk. í húsnæði sviðsins í Stakkahlíð. Starfsfólk og nemendafélög sviðsins leggja mikla áherslu á að tekið sé vel á móti nýjum nemendum. Á nýnemakynningunni er farið yfir lykilatriði sem tengjast náminu, starfsemi og aðstöðu sviðsins. Boðið verður upp á hádegissnarl.
Móttakan er kjörinn vettvangur til að kynnast háskólasvæðinu og mynda tengsl við samnemendur.
Nemendur fá sendan tölvupóst með ítarlegum upplýsingum um móttökuna í lok júní. Þátttaka í nýnemadögum er hluti af náminu.
Dagskrá
Skriða
09.00-09.05 Velkomin – Anna Sigríður Ólafsdóttir, forseti Deildar heilsueflingar, íþrótta og tómstunda
09.05-09.15 Fyrstu skrefin í háskólanum – Ásdís Hrefna Haraldsdóttir, kennslustjóri Menntavísindasviðs
09.15-09.20 Tækniþjónusta – Áslaug Björk Eggertsdóttir, verkefnisstjóri Menntasmiðju
09.20-09.25 Bókasafnið – Helgi Sigurbjörnsson, verkefnisstjóri á bókasafni
09.25-09.30 Náms- og starfsráðgjöf – Lýdía K. Sigurðardóttir, náms- og starfsráðgjafi
09.30-09.35 Umhverfismál – Þorbjörg Sandra Bakke, verkefnisstjóri Framkvæmda- og tæknisviðs
09.35-09.45 Samantekt og kynning á dagskrá – Kolbrún L. Kjartansdóttir, forseti sviðsráðs
09.45-10.00 Hlé
10.00-10.45 Kynningar í deildum
10.45-11.45 Samhristingur og spjall
11.45-12.15 Ljúffengt snarl
Fundarstjóri: Kolbrún L. Kjartansdóttir, forseti sviðsráðs Menntavísindasviðs
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá eftir hádegi.
Í fyrstu viku kennslu verða ýmsar hagnýtar kynningar fyrir nemendur, t.d. á starfi nemendafélaga, Q félagi hinsegin stúdenta og Háskóladansinum.
Fylgist með!
Móttaka nýnema Menntavísindasviðs verður haldin mánudaginn 27. ágúst nk. í húsnæði sviðsins í Stakkahlíð.