Með fróðleik í fararnesti: Snjór og ís - frestað til 27. feb. vegna veðurs
Mörkin 6
Ferð Háskóla Íslands og Ferðafélags barnanna á slóðir snævar og íss í Bláfjöllum, sem var upphaflega auglýst 23. febrúar, hefur verið frestað til þriðjudagsins 27. febrúar vegna veðurs.
Hist verður við húsakynni Ferðafélags Íslands í Mörkinni 6 kl. 17 og ekið á einkabílum upp í Bláfjöll. Þar verða gerðar alls konar tilraunir með snjó: við bræðum snjó, lærum á snjóflóðaýla og hlöðum virki eða byggjum hugsanlega snjóhús.
Guðfinna Aðalgeirsdóttir, prófessor í jöklafræði við Háskóla Íslands, fræðir göngugesti um jökla, hvernig þeir hreyfa sig og af hverju þeir eru að minnka. Svo verða sett upp höfuðljós og farið í ljósagöngu í myrkrinu.
Gestir eru hvattir til að mæta mjög vel klæddir, með mikið og gott nesti, heitt á brúsa, skóflur, ljós og jafnvel snjóþotur, rassaþotur eða bara svarta plastpoka til að renna sér á. Ferðin tekur 3-4 klst.
Ferðin er hluti af samstarfsverkefni Ferðafélags Íslands og Háskóla Íslands sem ber nafnið Með fróðleik í fararnesti.
Þátttaka ókeypis og allir velkomnir. Ekkert að panta, bara mæta!
Ferð Háskóla Íslands og Ferðafélags barnanna á slóðir snævar og íss í Bláfjöllum, sem var upphaflega auglýst 23. febrúar, hefur verið frestað til þriðjudagsins 27. febrúar vegna veðurs.