Segðu mér doktor…
Norðurljósasal Hörpu
Háskóli Íslands býður til morgunverðarfundar um tækifærin sem felast í doktorsnámi og rannsóknum fyrir atvinnulíf og samfélag fimmtudaginn 1. mars kl. 8.30-10.00 í Norðurljósasal Hörpu. Aðalfyrirlesari verður Peder Holk Nielsen, forstjóri Novozymes A/S í Danmörku, fyrirtækis sem hefur mikla reynslu af samstarfi við danska háskóla.
Skrá mig á fundinn
Á fundinum verður fjallað um það hvaða þýðingu rannsóknir doktorsnema og leiðbeinenda þeirra hafa í nútímasamfélagi og hvernig hægt er að efla námið enn frekar í samstarfi háskóla, atvinnulífs og stjórnvalda.
Dagskrá
8:00 Húsið opnað með morgunhressingu
8:30 Dagskrá hefst
- Ávarp Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands
- Ávarp Jóns Atla Benediktssonar, rektors Háskóla Íslands
- Erindi Peders Holk Nielsen, forstjóri Novozymes A/S
- Spjallborð: Hvað finnst atvinnulífinu um nýtingu doktorsnáms?
- Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar
- Ásthildur Otharsdóttir, stjórnarformaður Marel
- Lokaorð - Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra,
Fundarstjóri er Hrund Rudolfsdóttir, forstjóri Veritas.
Fundurinn er haldinn í samstarfi við Landsbankann.
Morgunverðarfundurinn er öllum opinn en nauðsynlegt er að skrá sig á hann