Áhrif ensku á íslenskt málumhverfi
Út er komin bókin Language Development across the Life Span sem byggist á sjö ára rannsókn íslenskra fræðimanna á áhrifum ensku sem alþjóðlegs tungumáls hér á landi. Í bókinni komast höfundar m.a. að þeirri niðurstöðu að enska sé mikið notuð í íslensku málumhverfi, sérstaklega í háskólastarfi og í atvinnulífinu. Þá er það ályktun höfunda að opinber menntastefna hér á landi hafi ekki haldið í við þá þróun sem orðið hefur á málumhverfi almennings, m.a. með mikilli notkun ensku í daglegu máli. Rannsóknirnar sem fjallað er um í bókinni hafa bæði hagnýta og fræðilega skírskotun fyrir alla sem hafa áhuga á áhrifum ensku sem alþjóðlegs tungumáls.
Höfundar greina eru Birna Arnbjörnsdóttir, Hafdís Ingvarsdóttir, Ásrún Jóhannsdóttir, Guðmundur Edgarsson og Anna Jeeves en þær Birna og Hafdís ritstýrðu verkinu.