Afstaða til heilsuójafnaðar og tekjuójafnaðar
Oddi
312
Hjördís Harðardóttir, doktorsnemi í hagfræði við háskólann í Lundi heldur erindi um afstöðu fólks til ójafnaðar í heilsu og tekjum. Sérstaklega er sjónum beint að afstöðu hinna ýmsu þjóðfélagshópa.
Við rannsökum afstöðu einstaklinga til hvernig vega ber tekjuhópa þegar ójöfnuður í heilsu og tekjuójöfnuður er ákvarðaður. Afstaða er mæld með því að ákvarða rho-fastann í útvíkkaða Gini stuðlinum (e. extended Gini coefficient). Við mælum einnig ójafnaðarfælni (e. inequality aversion) með því að ákvarða Atkinsons epsilon, einnig fyrir ójöfnuð í heilsu og tekjum. Við berum saman niðurstöðurnar milli heilsu- og tekjuójafnaðar, rho-fasta og epsilon-fasta ásamt því að rannsaka fylgni bakgrunnsbreyta og afstöðu til ójafnaðar.
Hjördís Harðardóttir, doktorsnemi í hagfræði við háskólann í Lundi.