Skip to main content

Persónusaga – Þjóðarsaga?

Persónusaga – Þjóðarsaga? - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
16. nóvember 2017 10:00 til 16:00
Hvar 

Listasafn Reykjavíkur

Nánar 
Verð: 2500 kr.

Ráðstefna: Persónusaga  -  Þjóðarsaga?

Listasafn Reykjavíkur efnir til ráðstefnu um einstaklingssöfn í opinberri vörslu undir yfirskriftinni Persónusaga – Þjóðarsaga. Ráðstefnan stendur frá kl. 10-16.

Á ráðstefnunni verður rædd staða einkasafna sem hluta af íslenskri safnaflóru. Tilgangurinn er meðal annars sá að greina hvaða starfsemi er í kringum slík söfn, hvernig þeim er haldið lifandi og hvort að þau styrki eða skekki safneignir einstakra safna og hvaða áhrif tilvist þeirra hefur á listasöguna.

Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Rannsóknarsetur í safnafræðum og flytja fulltrúar frá mörgum af helstu listasöfnum landsins erindi. Flutt verða erindi um tilvist einkasafna utan höfuðborgarsvæðisins og um það hvernig einstaklingar takast á við það hlutverk að eignast arfleið listamanns sem getur talist þjóðarafur. Aðalfyrirlestur flytur Onita Wass safnstjóri Millesgården í Stokkhólmi sem er einstaklingssafn myndhöggvarans Carl Milles (1875-1955) eins lærimeistara Ásmundar Sveinssonar.

Skráning HÉR

Dagskrá

Ólöf Kristín Sigurðardóttir safnstjóri - Listasafn Reykjavíkur
Opnunarávarp   
   
Onita Wass safnstjóri – Millesgården, Stokkhólmi
Millesgården an artist home from the 1900´s into the 20th century

Sigurður Trausti Traustason deildarstjóri safneignar og rannsókna – Listasafn Reykjavíkur
Einstaklingssöfn innan Listasafns Reykjavíkur í fortíð, nútíð og framtíð

HÁDEGISHLÉ

Sigurjón Baldur Hafsteinsson prófessor – Rannsóknarsetur í safnafræðum
Safnafræði um einkasöfn og hið opinbera

Sigríður Melrós Ólafsdóttir safnstjóri - Listasafn Einars Jónssonar
Hnitbjörg falinn fjársjóður? 

N.N. Gerðarsafn - Listasafn Kópavogs

N.N. Listasafn Íslands 

KAFFIHLÉ

Halla Hauksdóttir stjórnarformaður - Listaverkasafn Valtýs Péturssonar
Að sitja uppi með fjársjóð

Hanna Dís Whitehead safnvörður - Listasafn Svavars Guðnasonar
Á grunni forms og lita 

UMRÆÐUR, RÁÐSTEFNUSLIT OG LÉTTAR VEITINGAR

Ráðstefna um listasöfn einstakinga í opinberri vörslu. Onita Wass, safnstjóri Millesgaarden í Stokkhólmi meðal fyrirlesara. Skráning á listasafnreykjavikur.is.

Persónusaga – Þjóðarsaga?