Vísindamenn Hjartaverndar og HÍ meðal þeirra fremstu
Vilmundur Guðnason, prófessor við Háskóla Íslands og forstöðulæknir Hjartaverndar, og Albert Vernon Smith, erfðafræðingur hjá Hjartavernd og gestaprófessor við Háskóla Íslands, eru í hópi 3000 áhrifamestu vísindamanna heims að mati Thomson Reuters. Nýr listi fyrir árið 2015 var nýverið birtur á vefsvæði Thomson Reuters.
Vilmundur og Albert bætast þannig í hóp þeirra átta vísindamanna sem starfa á Íslandi og fyrir voru á listanum en hann var gefinn út í fyrsta skipti í fyrra. Staða íslenskra vísindamanna á listanum er frábær viðurkenning á árangri vísindastarfs á Íslandi en af þeim 10 sem eru á listanum eru þrír með stöðu prófessors við Háskóla Íslands og fimm með rannsóknaprófessorsstöðu við skólann.
Á listann komast þeir vísindamenn sem eru hópi þess eins prósents í sinni grein í heiminum sem mest er vitnað til í vísindagreinum. Það er einstakt afrek að komast á þennan eftirsótta lista en hann staðfestir að vísindamenn sem starfa á Íslandi eru komnir í röð þeirra allra öflugustu í heiminum í dag.
Listi Thomson Reuters yfir áhrifamikla vísindamenn sem starfa á Íslandi árið 2015 er svohljóðandi:
Nafn | Stofnun | Staða við Háskóla Íslands |
Albert Vernon Smith | Hjartavernd/HÍ | Rannsóknarprófessor |
Augustine Kong | Íslensk erfðagreining/HÍ | Rannsóknarprófessor |
Berhard Ö. Pálsson | USCD/HÍ | Rannsóknarprófessor |
Daníel F. Guðbjartsson | Íslensk erfðagreining/HÍ | Rannsóknarprófessor |
Guðmar Þorleifsson |
Íslensk erfðagreining |
|
Kári Stefánsson | Íslensk erfðagreining/HÍ | Prófessor |
Þorsteinn Loftsson | Háskóli Íslands | Prófessor |
Unnur Þorsteinsdóttir | Íslensk erfðagreining/HÍ | Rannsóknarprófessor |
Valgerður Steinþórsdóttir | Íslensk erfðagreining | |
Vilmundur Guðnason | Hjartavernd/HÍ | Prófessor |