Málstofa um vesturíslenskt mál og menningu
Efnt verður til málstofu um vesturíslenskt mál og menningu á haustmisseri sem opin er almenningi. Fyrirlestrar verða í stofu 303 í Árnagarði á fimmtudögum milli kl. 10:00 og 12:30. Ætlunin er að fjalla um þróun íslensku og íslenskrar menningar í Vesturheimi og samspil máls og menningar þar allt frá upphafi vesturferða til dagsins í dag.
Dagskrá haustmisseris:
3. september: Upphaf vesturferða og menningarþróun vestra
- Birna Arnbjörnsdóttir: Gögn og fyrri rannsóknir og rannsóknarhefðir
- Guðmundur Hálfdanarson: Bakgrunnur vesturferða: Ísland á 19. öld
- Kristján Árnason: Eru mállýskur á Íslandi?
10. september: Saga vesturferða
- Helgi Skúli Kjartansson: Var okkar fólk eithvað spes? Nokkur sérkenni Íslendinga sem vesturfara og Vesturheimsbúa
- Ólafur Arnar Sveinsson: Íslendingar í Ameríku: Sjálfsmyndasköpun hóps
- Vilhelm Vilhelmsson: Deilur Vestur-Íslendinga um stjórnmál, menningu og aðlögun að nýju samfélagi
17. september: Vesturíslensk menning verður til
- Daisy Neijmann: Mál og menningarleg sjálfsmynd
- Gísli Sigurðsson: Mál og menning í frásögnum
24. september: Íslensk skáld í Vesturheimi
- Bergljót S. Kristjánsdóttir: Jóhann Magnús Bjarnason og íslenska leynilögreglusaganViðar Hreinsson: Stephan G. Stephansson
1. október: Vesturíslenskar bókmenntir
- Dagný Kristjánsdóttir: Vesturíslenskar barnabókmenntir og Jóhann Magnús Bjarnason
- Birna Bjarnadóttir: Leikrit Guttorms J. Guttormssonar
- Úlfar Bragason: Bréf sem heimildir um vesturfara og vesturferðir
22. október: Að flytja mál milli landa og geyma það þar
- Ásta Svavarsdóttir: Íslenska á 19. öld – Málið sem var flutt vestur
- Birna Arnbjörnsdóttir: Íslenska sem erfðarmál í Vesturheimi. Tvítyngi og læsi
29. október: Íslenskt málafbrigði verður til og þróast
- Höskuldur Þráinsson: „Pönnukökur á Esjunni“. Rannsóknir á framburði Vestur-Íslendinga og helstu einkenni hans
5. nóvember: Íslensk og vesturíslensk orð
- Höskuldur Þráinsson: Gamlar og nýjar athuganir á vesturíslenskum orðum og orðmyndum: Einn neli og fleiri
- Matthew Whelpton: Litir, ílát og líkamshlutar
12. nóvember: Íslensk og vesturíslensk setningagerð
- Jóhannes Gísli Jónsson: Fallstjórn í vesturíslensku
- Höskuldur Þráinsson: Gamlar og nýjar athuganir á vesturíslenskri setningagerð: „Drengurinn er að sofa og froskurinn kemur úr krukkuna“
3.12. Ráðstefna um vesturíslenskt mál og menningu
Boðsfyrirlesarar:
- Angela Falk, Uppsalaháskóla
- Karoline Kühl, Kaupmannahafnarháskóla
Nemendur og kennarar segja frá eigin rannsóknum. Ráðstefnan er opin öllum. Gert er ráð fyrir að fyrir hádegi verði einkum fjallað um menningu, bókmenntir og sögu Vestur-Íslendinga en eftir hádegi um íslensku sem erfðarmál í Vesturheimi.