Skip to main content
11. maí 2022

Styrkir til nýnema sem innritast í HÍ í haust

Styrkir til nýnema sem innritast í HÍ í haust - á vefsíðu Háskóla Íslands

Háskóli Íslands veitir framhaldsskólanemum, sem ná afburðaárangri á stúdentsprófi og innritast í skólann, styrki úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands. Skólinn auglýsir nú eftir umsóknum um styrki og er umsóknarfrestur til 5. júní

Sjóðurinn var settur á laggirnar árið 2008 og síðan þá hafa hátt í nýnemar hlotið styrki úr honum. Styrkirnir eru að fjárhæð 300.000 kr. hver auk 75.000 kr. til endurgreiðslu á skrásetningargjaldi við Háskóla Íslands.

Að þessu sinni líkt og undanfarin ár verður sérstök áhersla lögð á að styrkja þá nemendur sem sækja um kennaranám eða annað nám í menntavísindum og eins þá nemendur sem hafa íslensku sem annað mál. 

Við val á styrkhöfum er tekið mið af:

  • framúrskarandi námsárangri á stúdentsprófi 
  • virkni í félagsstörfum
  • árangri nemenda á öðrum sviðum, s.s. í listum og íþróttum 
  • sérstökum framförum í námi eða góðum námsárangri þrátt fyrir erfiðar aðstæður 

Hægt er að sækja um styrk og kynna sér sjóðinn nánar á vef Háskólans.
 

Stelpa á hjóli við Aðalbyggingu