Skip to main content
14. júní 2023

Siðfræðistofnun HÍ semur við forsætisráðuneytið um ráðgjöf

Siðfræðistofnun HÍ semur við forsætisráðuneytið um ráðgjöf - á vefsíðu Háskóla Íslands

Forsætisráðuneytið og Siðfræðistofnun Háskóla Íslands hafa gert með sér samning um ráðgjöf stofnunarinnar til stjórnvalda um siðferðisleg efni og gerð kennsluefnis um siðareglur. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands og Eyja Margrét J. Brynjarsdóttir, stjórnarformaður Siðfræðistofnunar, undirrituðu samninginn í gær.

Samkvæmt samningnum skal Siðfræðistofnun vera forsætisráðuneytinu til ráðgjafar í siðfræðilegum efnum á samningstímanum auk þess sem ráðuneytið getur óskað eftir ráðgjöf um einstök mál, þ.m.t. fyrirhugaða lagasetningu.

Þar að auki mun Siðfræðistofnun í samvinnu við forsætisráðuneytið vinna að gerð kennsluefnis, námskeiða og handbóka um siðareglur ráðherra og siðareglur starfsfólks Stjórnarráðsins. Þá verða skipulögð málþing um siðareglur og siðferði í opinberum störfum annars vegar og um gervigreind hins vegar.

Samningurinn gildir til maí 2024 en samkvæmt honum greiðir forsætisráðuneytið alls 7 milljónir króna til Siðfræðistofnunar.
 

Eyja Margrét J. Brynjarsdóttir, stjórnarformaður Siðfræðistofnunar, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra undirrita samninginn.
Páll Rafnar Þorsteinnson, verkefnisstjóri Sifðræðistofnunar, Eyja Margrét J. Brynjarsdóttir, stjórnarformaður Siðfræðistofnunar, Ólöf Garðarsdóttir, forseti Hugvísindasviðs HÍ, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. MYND/Anton Brink