Skip to main content
2. nóvember 2020

Samstarf um stjórnarskrármál

Rannsóknaverkefnið Lýðræðisleg stjórnarskrágerð og Vísindavefurinn hafa stofnað til samstarfs um stjórnarskrármál til þess að varpa ljósi á þau mörgu álitamál og spurningar sem nú er fjallað um á samfélagsmiðlum, í fjölmiðlum og á vettvangi stjórnmálanna í tengslum við endurskoðun stjórnarskrárinnar. Svör við spurningum áhugasamra verða birt á Vísindavefnum og hefur það fyrsta nú þegar litið dagsins ljós.

Nýlega skiluðu forystukonur Samtaka kvenna um nýja stjórnarskrá undirskriftum 43.423 íslenskra borgara þar sem þess er krafist að Alþingi „virði niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar 20. október 2012 og lögfesti nýju stjórnarskrána“ – þar sem „Nýja stjórnarskráin“ vísar til frumvarps Stjórnlagaráðs frá 2011, sem dagaði uppi í meðförum Alþingis í mars 2013. Á þessu kjörtímabili hefur forsætisráðherra hins vegar haft forystu um tillögur um breytingar á stjórnarskránni sem formenn allra flokka á þingi hafa fjallað um á reglulegum fundum. Hluti þeirra atriða stjórnarskrárinnar sem ætlunin er að breyta á þessu kjörtímabili hafa einnig verið rædd í umfangsmiklu almenningssamráði sem forsætisráðuneytið stóð fyrir árið 2019, en Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands annaðist umsjón þess og rannsóknaverkefnið veitti ráðgjöf.

Vegna þess hve margir boltar eru á lofti í stjórnarskrármálum þessar vikurnar og svo verður líklega fram á vor fýsir eflaust marga að vita meira um einstaka þætti núgildandi stjórnarskrár og frumvarp Stjórnlagaráðs. Saga íslensku stjórnarskrárinnar er orðin nokkuð löng og ekki alveg einföld og jafnvel fólk sem hefur staðgóða þekkingu á stjórnarskránni áttar sig oft á því að það eru gloppur í þekkingunni. Allir eru betur settir ef greiður aðgangur er að skýrum svörum við algengum spurningum um stjórnarskrána og sögu hennar.

Ætlunin með samstarfinu er því að leitast við að svara þeim spurningum sem berast – annaðhvort til Vísindavefsins - með því að smella á hnappinn sem merktur er SPYRJA á öllum síðum hans og fylgja einföldum leiðbeiningum - eða beint til Rannsóknaverkefnisins (stjornarskra@hi.is). Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið visindavefur@hi.is.

Tilgangurinn er að hjálpa fólki til að skilja og átta sig á þeim spurningum sem nú er fjallað um á samfélagsmiðlum, í fjölmiðlum og á vettvangi stjórnmálanna og því eru öll hvött til að senda spurningar sem upp kunna að koma um stjórnarskrána eða málefni tengd henni. Umsjónarmenn verkefnisins munu gera sitt besta til að gefa stutt en innihaldsrík svör. Jafnframt eru þau sem sjá annmarka á svörunum að láta vita af því svo hægt sé að lagað það sem úrskeiðis kann að fara.

Stjórnarráðshúsið