Skip to main content
14. desember 2018

Rúnar Snær vann smásagnasamkeppni um mannréttindi

Rúnar Snær Reynisson, fréttamaður RÚV á Austurlandi, bar sigur úr býtum í smásagnasamkeppni sem efnt var til í tilefni af 70 ára afmæli Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna. Vilborg Davíðsdóttir, varaformaður RSÍ, tilkynnti úrslitin á opnum hátíðarfundi um Mannréttindayfirlýsinguna í Veröld – húsi Vigdísar. Vinningshafinn hlýtur í verðlaun þriggja vikna dvöl á dvalarsetri á meginlandi Evrópu.

Rúnar Snær sagði í þakkarávarpi sínu að hann hafi í fyrstu ekki átt neitt í sarpi sínum sem tengdist mannréttindum, en þegar hann hefði farið að tengja þau við loftslagsmál hafi neistinn kviknað og sagan skrifaði sig sjálf. „Það er vandasamt að gera listaverk um þetta efni, það er stutt í boðskap og prédikun. Við þurfum engan skáldskap til að heyra um vont fólk sem brýtur mannréttindi. Hvað með allt góða fólkið sem brýtur mannréttindi? Er neyslusamfélagið mannréttindi eða er neyslusamfélagið mannréttindabrot?”, sagði Rúnar Snær þegar hann sagði frá tilurð verðlaunasögunnar.

Það voru sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi, upplýsingaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna fyrir Vestur-Evrópu, Rithöfundasamband Íslands og Hugvísindastofnun Háskóla Íslands sem stóðu að keppninni og bárust 75 sögur í keppnina sem allar fjalla um mannréttindi á einn eða annan hátt. 

Í umsögn dómnefndar um söguna segir: ,,Höfundur leyfir ímyndunaraflinu að takast á við stöðu sem gæti beðið jarðarbúa ef fram heldur sem horfir. Þetta er efnismikil og vel skrifuð framtíðarsaga. Sagan fjallar um gjörbreyttan heim í náinni framtíð, eftir menningarhrun og náttúruhamfarir sem enn setja mark á lífið sem sagan lýsir. Vindar gnauða á kaldranalegum berangri og grímuklætt fólk skýst á milli skýla, á flótta undan eilífum sandstormi. Sykurhúðuð harðstjórn ræður ríkjum hjá kynslóðinni sem tekur við völdum eftir hrunið og refsar hún foreldrum sínum í kerfisbundum sýndarréttarhöldum. Gerð er tilraun til að endurrækta mannkyn í þessum breytta heimi, með hjálp hugleiðslu og sjálfsdáleiðslu, til að eyða óæskilegum hneigðum en þeim fylgja jafnframt fleiri mannlegar tilfinningar sem við álítum hluta mennskunnar. Mannréttindi einstaklinga víkja fyrir heildarhagsmunum en mannréttindabrotum er framfylgt af þeirri mannúð sem efni standa til.“ Dómnefnd skipuðu þau Ástráður Eysteinsson prófessor, Gauti Kristmannsson prófessor og Halldóra K. Thoroddsen rithöfundur.

 

Rúnar Snær Reynisson tók við viðurkenningarskjali úr hendi Michael Mann, sendiherra ESB á Íslandi. Vilborg Davíðsdóttir, varaformaður Rithöfundasambandsins, fylgist með.