Skip to main content
30. október 2019

Málþing til heiðurs Gísla H. Sigurðssyni, Prófessor emeritus

Í tilefni starfsloka Gísla H. Sigurðssonar, prófessors í svæfinga- og gjörgæslulækningum við Háskóla Íslands og Landspítala, verður haldið málþing honum til heiðurs föstudaginn 15. nóvember 2019 frá 15:00-17:30 í Hringsal Landspítala.

Gísli H. Sigurðsson var ráðinn fyrsti prófessor í svæfinga- og gjörgæslulækningum við Háskóla Íslands og forstöðulæknir við Landspítala árið 2000 eftir að hafa gegnt stöðu prófessors við Háskólann í Bern fyrir þann tíma. Hann hefur verið mjög virkur í kennslu læknanema, þróun sérnámskennslu á Íslandi og skandinavísku samstarfi á sviði kennslu og vísinda. 

Gísli varð sjötugur í janúar síðastliðnum og lauk þá störfum sem prófessor. Hann hefur þó gegnt hlutastarfi við Landspítala síðan og komið að skipulagningu samnorræns framhaldsnáms í gjörgæslulækningum og íslensku samþættu kjarnanámi í bráðagreinum lækninga (SKABL) auk þess að sinna vísindum og ritstjórnarstörfum.

Fundarstjóri á málþinginu verður Martin Ingi Sigurðsson, prófessor í svæfinga-og gjörgæslulækningum. Málþingið er haldið sameiginlega af Háskóla Íslands og Landspítala.

Dagskrá

15:00-15:30 – Starfsferill Gísla og vísindastarf – Martin Ingi Sigurðsson, prófessor í svæfinga-og gjörgæslulækningum, Landspítalinn / Háskóli Íslands

15:30-16:15 – Skandinavískt samstarf innan SSAI – Sigríður Kalman, prófessor við Karolinska Institutet og fyrrverandi forseti SSAI, Samtaka svæfinga-og gjörgæslulækna í Skandinavíu

16:15-17:00 – „Lessons learned after 32 years on the ACTA Editorial Board“ – Sven Erik Gisvold, prófessor við Háskólann í Þrándheimi, fyrrverandi ritstjóri ACTA Anaesthesiologica Scandinavica

17:00-17:15 - Kveðja frá samstarfsmönnum 

17:15-18:15 – Slit dagskrár, léttar veitingar í boði ACTA Anaesthesiologica Scandinavica

Málþing 15. nóvember til heiðurs Gísla H. Sigurðssyni, Prófessor emeritus í svæfinga-og gjörgæslulækningum

Gísli H. Sigurðsson