Skip to main content
21. september 2020

Laus staða verkefnisstjóra við alþjóðlegt rannsóknarverkefni

Laust er til umsóknar 50% starf verkefnisstjóra við alþjóðlegt rannsóknarverkefni á vegum Sálfræðideildar Háskóla Íslands og Miðstöðvar í lýðheilsuvísindum í samvinnu við Sálfræðideild Uppsalaháskóla.

Vilt þú starfa við verkefnisstjórn á spennandi rannsókn á áföllum í þverfræðilegu starfsumhverfi?

Laust er til umsóknar 50% starf verkefnisstjóra við alþjóðlegt rannsóknarverkefni á vegum Sálfræðideildar Háskóla Íslands og Miðstöðvar í lýðheilsuvísindum í samvinnu við Sálfræðideild Uppsalaháskóla. Rannsóknin felst í því að þróa inngrip sem ætlað er að draga úr áleitnum minningum eftir áföll og meta árangur þess hjá konum með áfallasögu. Ráðið er í starfið til eins árs með möguleika á framlengingu til tveggja ára og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sinna verkefnisstjórn við rannsókn á þróun og árangri inngrips til að draga úr áfallaminningum meðal íslenskra kvenna 
  • Skipuleggja fundi rannsóknahópanna á Íslandi og í Svíþjóð og samræma ýmsar aðgerðir í verkefninu
  • Stýra gagnasöfnun fyrir rannsóknirnar, í samvinnu við annað starfsfólk rannsóknahópanna
  • Sinna ýmsum verkefnum fyrir rannsóknirnar, t.d. samskipti við Vísindasiðanefnd og ganga frá samningum við starfsfólk rannsóknahópanna
  • Ferðalög innan- og utanlands til að hitta starfsfólk rannsóknahópanna og kynna verkefnið 

Hæfnikröfur

  • Meistaragráða í grein sem nýtist í starfi. Meistaragráða í verkefnisstjórn er kostur en ekki skilyrði. 
  • Reynsla af verkefnisstjórnun. 
  • Góð skipulags- og samskiptahæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
  • Góð ritfærni og færni í miðlun og framsetningu upplýsinga á íslensku og ensku.

Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 28.09.2020

Nánari upplýsingar og leiðbeiningar fyrir umsókn á heimasíðu Stjórnarráðsins.