Skip to main content
13. júlí 2020

Hvatningarverðlaun 2020

""

Óskað er eftir tilnefningum til Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs 2020. 

Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs eru árlega veitt vísindamanni sem snemma á ferlinum þykir hafa skarað fram úr og skapað væntingar um framlag í vísindastarfi sem styrki stoðir mannlífs á Íslandi.

  • Verðlaunin eru þrjár milljónir króna.

Tilnenfningar

Tilnefningar geta komið frá öllum sviðum vísinda, tækni og fræða.

Tilnefna má vísindafólk sem starfar á Íslandi við:

  • háskóla
  • rannsóknastofnanir
  • fyrirtæki
  • sjálfstætt starfandi

Öllum, sem eru í aðstöðu til að meta störf einstakra vísindamanna, er heimilt að senda tilnefningar. Ferilskrá vísindamannsins skal fylgja tilnefningu ásamt
rökstuðningi þess sem tilnefnir. Hvatningarverðlaunin verða afhent á Rannsóknaþingi í haust.

Skilafrestur

Frestur til að skila inn tilnefningum er til og með 23. ágúst 2020.

Tilnefningum ásamt rökstuðningi og ítarlegum upplýsingum um feril tilnefndra skal skilað með tölvupósti til Rannís á:

Nánar á vef Rannís 

""