Skip to main content
5. júní 2018

HÍ og SA vinna að auknum tengslum náms og starfsvettvangs

""

Efling starfsnáms og verkefnavinnu í samstarfi við fyrirtæki í landinu er meðal helstu áhersluatriða í nýrri viljayfirlýsingu um samstarf sem Háskóli Íslands (HÍ) og Samtök atvinnulífsins (SA) hafa gert. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður SA, undirrituðu yfirlýsinguna í Háskóla Íslands á dögunum.

Með viljayfirlýsingunni vilja Háskóli Íslands og Samtök atvinnulífsins koma á fót formlegu samstarfi, bæði til að mæta þörfum nemenda en ekki síður atvinnulífs og samfélags. Samfara örum tækni- og samfélagsbreytingum er gert ráð fyrir að þróun á vinnumarkaði verði hröð og það kallar á starfsfólk með fjölbreytta menntun og bakgrunn. Til þess að tryggja velsæld, hagvöxt og framleiðni hér á landi og áframhaldandi samkeppnishæfni Íslands á alþjóðavísu telja báðir aðilar nauðsynlegt að menntakerfi og atvinnulíf eigi náið samstarf en með því megi jafnframt tryggja áframhaldandi framþróun íslensks samfélags.

Í viljayfirlýsingunni eru tilgreind nokkur verkefni sem ætlunin er að ráðast í á næstunni. Greina á samstarfsfleti aðilanna tveggja og kanna bæði þörf og viðhorf Samtaka atvinnulífsins og Háskóla Íslands hvors til annars. Þessi vinna verður í höndum sérstaks samstarfshóps sem skipaður verður fulltrúum HÍ og SA. Í framhaldinu er gert ráð fyrir að fram fari sameiginleg stefnumótun og gerð formlegs samstarfssamnings. 

Þá er ætlunin að vinna að auknum tengslum náms og starfsvettvangs sem fyrr segir, bæði í gegnum skipulegt starfsnám og verkefnavinnu nemenda við Háskóla Íslands í samstarfi við fyrirtæki og undir handleiðslu leiðbeinenda. Tekið er sérstaklega fram að settar verði reglur sem eiga að tryggja gæði slíkra verkefna og að akademískt frelsi verði virt. 

Fulltrúar Háskóla Íslands og Samtaka atvinnulífsins við undirritun viljayfirlýsingarinnar á dögunum. MYND/Kristinn Ingvarsson
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður SA, handala viljayfirlýsinguna. MYND/Kristinn Ingvarsson