Skip to main content
4. mars 2018

Háskóladagurinn á leið um landið

Háskólar landsins heimsækja átta sveitarfélög utan höfuðborgarsvæðisins dagana 5.-15. mars og verða með níu kynningar á þeim um það bil 500 námsleiðum sem í boði eru í skólunum sjö. Heimsóknirnar eru undir hatti samstarfs skólanna um Háskóladaginn.

Hinum eiginlega Háskóladegi var fagnað á laugardaginn 3. mars en þá lögðu þúsundir manna leið sína á háskólasvæðið og kynntu sér bæði námsframboð og þjónustu í Háskóla Íslands. Sams konar kynningar voru í Háskólanum í Reykjavík og Listaháskóla Íslands.

Háskólarnir halda áfram samstarfi sínu í kjölfar Háskóladagsins og bjóða líkt og fyrri ár til námskynninga um allt land.

Ferð Háskóladagsins um landið hefst strax mánudaginn 5. mars þegar skólarnir heimsækja Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi og verða með námskynningu frá kl. 10-12. Í framhaldinu rekur hver kynningin aðra eins og lesa má um hér að neðan. 

6. mars kl. 12:30 - 14:00 Fjölbrautaskóli Suðurnesja
7. mars kl. 10:10 - 11:25 Fjölbrautaskóli Suðurlands
8. mars kl. 11:00 - 12:30  Menntaskóli Ísafjarðar
12. mars kl. 10:00 - 11:30 Framhaldsskólinn í Austur- Skaftafellssýslu
13. mars kl. 11:00 - 12:30 Menntaskólinn á Egilsstöðum
14. mars kl. 9:30 - 11:00 Menntaskólinn á Akureyri og  kl. 12:30 - 14:00 í Verkmenntaskólinn á Akureyri
15. mars kl. 10:25 - 11:25 Fjölbrautarskóli Norðurlands Vestra

Námskynningarnar átta eru opnar öllum áhugasömum og vakin er sérstök athygli á því að fulltrúar frá náms- og starfsráðgjöf Háskóla Íslands verða með í för á öllum stöðum.

Frá Háskóladeginum 2018