Skip to main content
22. júlí 2021

Great Immortality tilnefnd til verðlauna

Great Immortality tilnefnd til verðlauna - á vefsíðu Háskóla Íslands

Greinasafnið Great Immortality: Studies on European Cultural Sainthood, í ritstjórn Jóns Karls Helgasonar og Marijan Dović, hefur verið tilnefnt til verðlauna evrópskra samanburðarbókmenntafræðinga (ESCL Excellence Award for Collaborative Research).

Í Great Immortality er að finna umfjöllun tuttugu höfunda um fjölbreytilegt framhaldslíf evrópskra listamanna, einkum þjóðskálda, í menningarlegu minni og pólitísku lífi innan einstakra ríkja. Í flestum tilvikum er lögð áhersla á helgifestu menningarlegra þjóðardýrlinga á 19. og 20. öld en þarna má einnig finna umfjöllun um ítalska miðaldahöfunda á borð við Dante og yfirstandandi tilraunir Spánverja til að gera katalónska arkitektinn Gaudi að opinberum dýrlingi kaþólsku kirkjunnar. Bókin er óbeint framhald af bókinni National Poets, Cultural Saints, sem þeir Jón Karl og Marijan sendu frá sér á árinu 2017. Báðar bækurnar eru hluti af ritröðinni National Cultivation of Culture (12. og 18. bindi).

Jón Karl Helgason er prófessor við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands og Marijan Dović er sérfræðingur við Stofnun slóvenskra bókmennta og bókmenntafræða. Útgefandi greinasafnsins er Brill.

Ljóst verður á haustdögum hvaða bók hreppir verðlaunin.

Upplýsingar um bókina á vef Brill

Great Immortality: Studies on European Cultural Sainthood, í ritstjórn Jóns Karls Helgasonar og Marijan Dović, hefur verið tilnefnt til verðlauna evrópskra samanburðarbókmenntafræðinga