Skip to main content
18. janúar 2018

Frost og fegurð á himni

„Við munum sjá Vetrarbrautina okkar og ætlum svo að skoða fyrirbæri í henni og utan hennar. Ef við erum heppin sjáum við örugglega norðurljós,“ segir Sævar Helgi Bragason, vísindamiðlar við Háskóla Íslands um göngu á föstudagskvöld sem helguð er himinhvolfinu. 

Gangan er liður í röðinni með Fróðleik í fararnesti sem er samstarfsverkefni Háskólans og Ferðafélags barnanna, sprota innan Ferðafélags Íslands. Þátttakendur munu safnast saman við skrifstofu Ferðafélagsins í Mörkinni 6, kl. 20 og aka í halarófu út fyrir borgarmörkin. Ferðinni er heitið að Kaldárseli í Hafnarfirði og þeir sem það vilja geta hitt hópinn þar um kl. 20:20. Það eru ekki ýkja mörg bílastæði í boði svo fólk þarf að leggja til beggja hliða við veginn.

Markmið göngunnar er að hvetja fólk til þess að njóta náttúrunnar að vetri til og himingeimsins nú þegar veður er stillt og skilyrði til stjörnuskoðunar eru með besta móti. 
Sævar Helgi Bragason mun lýsa því sem fyrri augu ber á kvöldhimninum en hann er fyrir löngu orðinn landsþekktur fyrir miðlun sína á undrum himingeimsins.  Hann hefur t.d. kennt stjörnufræði við góðan orðstír í Háskóla unga fólksins og í Háskólalestinni undanfarin ár sem bæði eru verðlaunaverkefni ætluð ungu fólki á vegum Háskóla Íslands.  Þá hefur hann farið mikinn í sjónvarpi og útvarpi og ritað bækur um hugðarefni sín.

Um er að ræða fyrstu gönguna af sex á þessu ári í samstarfi Háskólans og Ferðafélagsins undir yfirskriftinni „Með fróðleik í fararnesti“. Ferðirnar eru hugsaðar fyrir alla fjölskylduna og aðgangur að þeim er ókeypis.

Heitustu stjörnurnar bláar
Fáir hafa meiri ást á stjörnum himinhvolfsins hér á landi en Sævar og það kom berlega í ljós í sams konar göngu Háskólans og Ferðafélagsins í fyrra þar sem nokkur hundruð manns hlýddi á hann lýsa himinhvolfinu. Á föstudaginn kemur mun Sævar svara spurningum gesta, t.d. af hverju stjörnur eru mismunandi á litinn. Við getum tekið smá forskot á sæluna og fengið hann til að ljóstra því upp: „Stjörnurnar eru mismunandi á litinn vegna þess að þær eru misheitar. Heitustu stjörnurnar eru bláhvítar en köldustu rauðar, öfugt við það sem ætla mætti því í daglegu lífi notum við rautt fyrir heitt og blátt fyrir kalt. Bláu og bláhvítu stjörnurnar eru allt að 50.000°C heitar, tíu sinnum heitari en sólin okkar, en rauðu stjörnurnar eru ekki nema um 3500°C,“ svarar Sævar að bragði.

Norðurljósin sýna sig vonandi á föstudag, enda gefur spáin ágæt fyrirheit um það, Veðurstofan spáir allmikilli virkni

Andrómeda og Sverðþokan í sjónaukanum
Sævar og stjörnuteymið hans verða með stjörnusjónauka á staðnum og gefst göngugestum kostur á að rýna langt út í geiminn. „Við ætlum til dæmis að horfa 2,5 milljónir ljósára út fyrir Vetrarbrautina okkar á næsta nágranna okkar í geimnum, Andrómeduvetrarbrautina, sem stefnir á okkur á 110 km hraða á sekúndu eða svo. Eftir fjóra milljarða ára rekst hún á okkur. Við ætlum líka að skoða geimþoku sem heitir Sverðþokan í Óríon. Það er alveg sérstaklega glæsilegt fyrirbæri sem er í raun fæðingardeildin á himninum. Þar eru nýjar stjörnur að klekjast út úr gas- og rykhýðum. Ein þessara stjarna er heitasta stjarna sem við getum við séð á himinhvolfinu. Þegar ferðinni lýkur verður Júpíter að rísa á austurhimni og tunglið kemur upp skömmu fyrir miðnætti,“ segir Sævar. 

Veðurspáin fyrir föstudagskvöld er eins og áður sagði frábær, gert er ráð fyrir stilltu veðri til stjörnuskoðunar en þar sem það verður kalt hvetur Sævar göngugesti til það klæða sig vel og taka með sér eitthvað heitt að drekka. „Svo mæli ég með því að fólk komi með handsjónauka því maður sér ansi margt með slíkum sjónaukum, til dæmis Andrómeduvetrarbrautina og Sverðþokuna í Óríon,“ segir hann.

Við upphaf ferðar verður hist við skrifstofu Ferðafélags Íslands í Mörkinni 6 kl. 20 þaðan sem ekið verður að Kaldárseli. Áætlað er að ferðin taki um 2-3 klukkustundir en hún er farin í samstarfi við Ferðafélag barnanna eins og áður sagði, undirdeild Ferðafélags Íslands. Það er því tilvalið fyrir fjölskylduna að skella sér í hressandi göngu og fræðast um leið um himintunglin.

Háskóli Íslands og Ferðafélag Íslands hafa undanfarin sjö ár staðið saman að göngu- og hjólaferðum undir yfirskriftinni „Með fróðleik í fararnesti“. Reynsla og þekking fararstjóra Ferðafélagsins og þekking kennara og vísindamanna Háskólans blandast saman í áhugaverðum ferðum um höfuðborgarsvæðið og næsta nágrenni þess. 

Þátttaka er ókeypis eins og áður sagði og allir eru velkomnir.

Sævar Helgi Bragason