Skip to main content
10. október 2019

Átta vinningsteymi í samfélagshraðlinum Snjallræði

""

Átta vinningsteymi sem valin hafa verið til að taka þátt í samfélagshraðlinum Snjallræði voru kynnt til sögunnar við hátíðlega athöfn við lok árlegrar friðarráðstefnu Höfða friðarseturs í Veröld – húsi Vigdísar í dag. Teymin fá nú stuðning til þess að þróa áfram frumlegar hugmyndir sínar sem snerta m.a. lyfjaframleiðslu fyrir börn í Malaví, kortlagningarkerfi fyrir plokkara, umhverfisvæna þjónustu vegna andláta og tækni sem dregur úr matarsóun veitingastaða.

Alls bárust 46 umsóknir um þátttöku í Snjallræði í ár en þetta er í annað sinn sem hraðalinn er haldinn. Að honum standa Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Höfði - friðarsetur Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands og er markmiðið að veita fólki sem brennur fyrir bættu samfélagi vettvang til þess að þróa hugmyndir sínar áfram og finna þeim sjálfbæran farveg svo þær geti blómstrað og dafnað. 

Hraðalinn fer fram frá 7. október-28. nóvember og munu teymin sem taka þátt fá vinnuaðstöðu í Setri skapandi greina við Hlemm. Jafnframt fá þau stuðning við að þróa hugmyndina áfram og koma henni í framkvæmd ásamt þjálfun frá fremstu sérfræðingum á sviði samfélagslegrar nýsköpunar og aðgangi að neti mentora sem styðja við einstök verkefni. Þá býðst þátttakendum einstakt tækifæri í næstu viku til þess að vinna undir handleiðslu Svöfu Grönfeldt og samstarfsfélaga hennar frá MIT DesignX í svokölluðum Sprett. Þar munu teymin sannreyna eigin hugmyndir og kryfja þær til mergjar í krefjandi vinnustofum sem byggðar verða á fjórum grunnstoðum MIT DesignX: Understand – Solve – Envision – Scale. Spretturinn er styrktur af MIT Industrial Liaison Program (ILP) í gegnum samstarf Háskólans í Reykjavík við Snjallræði.

Höfði friðarsetur Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Háskóli Íslands, Reykjavíkurborg, Listaháskóli Íslands, Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð fyrirtækja, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Háskólinn í Reykjavík og Icelandic Startups standa að Snjallræði en framkvæmd hraðalsins er í höndum Höfða friðarseturs og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, í samstarfi við aðila frá MIT designX. MYND/Kristinn Ingvarsson

Eftirtalin teymi taka þátt í hraðlinum í ár:

Rephaiah - Sveinbjörn Gizurarson og Kristín Linda Ragnarsdóttir
Markmið Rephaiah er að setja á fót óhagnaðardrifin samtök sem hafa það að markmiði að framleiða lífsnauðsynleg lyf fyrir ung börn í Malaví. Með því mætir teymið þeirri gríðarlegu þörf sem er til staðar meðal þessa viðkvæma hóps.
 
abcLights ehf. - Rúnar Þórarinsson og Friðrik Sigfússon
abcLights hyggst hanna umhverfisvæn hágæðagróðurhús með það fyrir augum að veita ungum börnum tækifæri til þess að læra að rækta eigið grænmeti og ávexti og stuðla að auknum áhuga meðal almennings á grænum kostum. Stefnt er að samstarfi við sveitarfélög og leikskóla.

PLOGG-IN - Guolin Fang, Magdalena Stelf og Hulda Vigdísardóttir
PLOGG-IN er kerfi sem ætlað er að hjálpa plokkurum, útivistarfólki og umhverfissinnum sem reglubundið tínir upp sorp samhliða hreyfingu, að skipuleggja starf sitt.

EyCo - Sigurjón Norberg Kjærnested og Ívar Kristinsson
EyCo býður upp á frumlegar og sérsniðnar lausn fyrir einstaklinga og fyrirtæki til þess að kolefnisjafna eigin starfsemi og daglegt líf. Markmið EyCo er að minnka árlega kolefnislosun Íslands um 100 þúsund tonn.

Rótin - Kristín I. Pálsdóttir, Katrín Guðný Alfreðsdóttir, Guðrún Ebba Ólafsdóttir og Guðrún Erna Hreiðarsdóttir
Markmið Rótarinnar er að setja á fót stuðningssetur fyrir konur og koma samstarfi á milli stofnana, samtaka og annarra fagaðila sem fást við vímuefnameðferð fyrir konur, ofbeldi og úrvinnslu áfalla.

Tré lífsins - Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir, Oktavía Hrund og Olga Margrét
Tré lífsins hyggst bjóða upp á nýja valmöguleika við andlát þannig að fólk geti skrásett sögu sína og hinstu óskir fyrir andlát og eftir andlát lifi minning ástvina áfram á minningasíðu. Aska hins látna verður jafnframt gróðursett ásamt tré í minningagarði þar sem tréð vex til minningar um hinn látna.

Dattaca Labs - Arnar Jónsson, Bala Kamallakhran, Freyr Ketilsson og Viktoría Leiva
Dattaca Labs hyggst skapa félagslegan nýsköpunarmarkað (e. Social Innovation Marketplace) þar sem hægt verður að skrá áskoranir af ýmsum toga í gagnagrunn í þeim tilgangi að tengja saman einstaklinga, fyrirtæki, stofnanir og fleiri við rétta aðila sem líta á áskoranirnar sem tækifæri til lausna. 

GreenBytes - Renata Stefanie Bade Barajas, Jillian Verbeurgt og Conor Bennet
GreenBytes býður upp á lausn þar sem sölugögn, reiknirit og vélanám er nýtt til að draga úr matarsóun á veitingastöðum og auka um leið hagnað þeirra. 

Öflugir bakhjarlar og samstarf við atvinnulífið

Auk þess að veita nýjum samfélagslegum nýsköpunarhugmyndum brautargengi er Snjallræði vettvangur um aukið samstarf við atvinnulífið um nýjar lausnir með aukna áherslu á umhverfi og samfélag. Í hópi bakhjarla Snjallræðis eru afar framsækin fyrirtæki sem eiga það öll sammerkt að vilja leggja sitt af mörkum til samfélagsins. Þetta eru Össur, Marel, Deloitte, Icelandair og Landsvirkjun. Frekari upplýsingar um hraðalinn er að finna á síðu Snjallræðis, www.snjallraedi.is

Fulltrúar vinningsteymanna átta
Rúnar Þórarinsson og Friðrik Sigfússon
""
""
""
""
""
""
""