Skip to main content
12. maí 2020

Ársfundur Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands 12. maí

""

Ársfundur Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands var haldinn  í Teams fjarfundi þriðjudaginn 12. maí nk. kl. 8.30–10.

Upptöku af fundinum má finna hér að neðan.

Dagskrá:

Opnunarávarp. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra

Ávarp. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands

Rannsóknir á örplasti og efnamengun í lífríki sjávar við Ísland  í samhengi við heimsmarkmið SÞ. Halldór Pálmar Halldórsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Suðurnesjum

Milliliðalaust samband við fortíðina. Tilfinningar, fátækt og hungur í dagbók frá 19. öld. Eiríkur Valdimarsson, verkefnisstjóri við Rannsóknasetur HÍ á Ströndum – Þjóðfræðistofu

Vísindamaðurinn í samfélaginu: hvaða lærdóm geta háskólar dregið af reynslu rannsóknasetranna? Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir, forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Vestfjörðum

Samfélagslegt hlutverk háskóla. Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, aðstoðarrektor vísinda við Háskóla Íslands

Fundarslit og samantekt. Guðmundur Hálfdanarson, formaður ráðgefandi nefndar Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands og forseti Hugvísindasviðs Háskóla Íslands.

Fundarstjóri var Sæunn Stefánsdóttir, forstöðumaður Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands. 

""