Skip to main content
5. júlí 2022

Allsherjaruppfærsla á vélbúnaði Uglu

Allsherjaruppfærsla á vélbúnaði Uglu - á vefsíðu Háskóla Íslands

Allsherjaruppfærsla á vélbúnaði Uglunnar, innri vefs Háskólans, mun eiga sér stað eftir klukkan 16 í dag, þriðjudaginn 5. júlí. Búast má við rekstrartruflunum í kjölfar uppfærslunnar.

Á ytri vefjum Háskóla Íslands er búist við því að uppfærslan hafi áhrif á eftirfarandi síður eða síðuhluta:

  • Starfsmannaleit
  • Fræðimannaleit
  • Starfsmannalista
  • Upplýsingasíður um starfsmenn
  • Námsleiðasíður
  • Viðburðadagatal

Notendur eru beðnir velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda.

Uglumósaík