Skip to main content
9. júní 2022

Á fjórða hundrað þreyta rafrænt inntökupróf í Læknadeild

Á fjórða hundrað þreyta rafrænt inntökupróf í Læknadeild - á vefsíðu Háskóla Íslands

Ríflega 360 þátttakendur eru skráðir í árlegt inntökupróf í læknisfræði og sjúkraþjálfunarfræði við Læknadeild Háskóla Íslands sem fram fer 9. og 10. júní á háskólasvæðinu. Prófahald verður í fyrsta sinn alfarið rafrænt.

Alls munu 295 þreyta inntökupróf í læknisfræði og þá sækjast 68 manns eftir inngöngu í sjúkraþjálfunarfræði. Sama próf er lagt fyrir alla þátttakendur og þeir sem standa sig best á prófinu eiga kost á að hefja nám. 

Fjöldi þeirra sem veitt er innganga miðast við afkastagetu sjúkrahúsanna við verklega þjálfun nemenda. Í læknisfræði verða teknir inn 60 nemendur og 35 nemendur í sjúkraþjálfunarfræði.

Inntökuprófið hefur um langt skeið farið fram í húsnæði Menntaskólans við Hamrahlíð en nú er það haldið í fjórum byggingum Háskólans: Háskólatorgi, Árnagarði, Eirbergi og Aðalbyggingu. 

Allir þátttakendur þreyta prófið í prófakerfinu Inspera og geta ýmist nýtt eigin tölvur eða tölvur sem Háskóli Íslands lánar þeim til próftöku. Þetta í fyrsta sinn sem fyrirkomulag inntökuprófa er með þessum hætti en Háskóli Íslands hefur notað Inspera-kerfið við rafrænt prófahald í skólanum undanfarin misseri með góðum árangri. Inntökuprófið tekur tvo daga líkt og áður og í því eru sex tveggja tíma próflotur. 

Þess má geta að þau sem fara í prófið en fá ekki inngöngu geta skráð sig í aðrar deildir Háskóla Íslands fram til 20. júlí.

Almennar upplýsingar um prófið
 

Læknanemar að störfum