Skip to main content

Vísinda- og nýsköpunarverðlaun Háskóla Íslands 2024

Vísinda- og nýsköpunarverðlaun Háskóla Íslands 2024 - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
14. maí 2024 9:00 til 11:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Vísinda- og nýsköpunarverðlaun Háskóla Íslands 2024 verða afhent þriðjudaginn 14. maí kl. 9-11 í Hátíðasal Aðalbyggingar skólans.

Verðlaunin, sem hétu áður Hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands, eru nú veitt í 26. sinn en keppnin er samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Árnason|Faktor og Auðnu-tæknitorgs.

Alls bárust nærri 40 tillögur í samkeppnina að þessu sinni og veitt verða verðlaun fyrir bestu hugmyndirnar í í fjórum flokkum: Heilsa og heilbrigði, Tækni og framfarir, Samfélag og Hvatningarverðlaun auk þess sem sigurvegari keppninnar verður valinn úr hópi verðlaunahafa úr ofangreindum flokkum.

Viðburðurinn er hluti af nýsköpunarvikunni Iceland Innovation Week 2024.

Vísinda- og nýsköpunarverðlaun Háskóla Íslands 2024 verða afhent þriðjudaginn 14. maí kl. 9-11 í Hátíðasal Aðalbyggingar skólans.

Vísinda- og nýsköpunarverðlaun Háskóla Íslands 2024