Útgáfuteiti og kynning á alþjóðlegri handbók um rannsóknir í kennaramenntun
Stakkahlíð, K-208
Föstudaginn 11. júní verður Handbook of Self-Study of Teaching and Teacher Education Practice kynnt og haldið upp á útgáfu bókarinnar. Í handbókinni segir frá fjölda rannsókna í kennaramenntun í 14 löndum, sem byggja á aðferðafræði starfstengdrar sjálfsrýni. Hafdís Guðjónsdóttir er einn af ritstjórum bókarinnar og í henni eru sex kaflar skrifaðir af höfundum sem eru kennarar og doktorsnemi við Menntavísindasvið. Höfundar kaflanna ásamt Hafdísi eru: Edda Óskarsdóttir, Jónína Vala Kristinsdóttir, Karen Rut Gísladótir, Megum Nishida og Svanborg R Jónsdóttir.
Dagskrá:
1. Handbókin kynnt - Hafdís Guðjónsdóttir segir frá inntaki bókarinnar og aðferðafræði
2. Kaflarnir sex eftir Menntavísindasviðsfólkið kynntir
3. Spurt og svarað - skálað og snarlað
Föstudaginn 11. júní verður Handbook of Self-Study of Teaching and Teacher Education Practice kynnt og haldið upp á útgáfu bókarinnar.