Skip to main content

Útgáfuhóf: Afríka sunnan Sahara í brennidepli II

Útgáfuhóf: Afríka sunnan Sahara  í brennidepli II - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
21. mars 2024 15:30 til 17:00
Hvar 

Háskólatorg

Bókasala stúdenta

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Blásið verður til útgáfuhófs í Bókasölu stúdenta fimmtudaginn 21. mars í tilefni af útgáfu bókarinnar Afríka sunnan Sahara í brennidepli II. Í bókinni fjalla sextán höfundar um fjölbreytt viðfangsefni íbúa og stjórnvalda Afríku sunnan Sahara í 14 köflum á aðgengilegan hátt með texta og myndum.

Afríka sunnan Sahara er heillandi heimshluti. Þar á mannkyn uppruna sinn, mannlíf er fjölbreytt, náttúra stórbrotin og auðlindir ríkulegar. Saga samskipta við Evrópu, með þrælaverslun og nýlenduyfirráðum, skilur eftir sig djúp spor enn í dag. Stutt er síðan flest ríki á þessu svæði öðluðust sjálfstæði. Íbúum fjölgar hratt og er ungt fólk í miklum meirihluta Nýrrar kynslóðar bíða tækifæri með aukinni menntun, borgvæðingu og rísandi hagkerfum en samtímis áleitnar áskoranir fyrir sjálfbæra þróun.

Höfundar með þekkingu á samfélagsþróun í Afríku sunnan Sahara fjalla um fjölbreytt viðfangsefni á aðgengilegan hátt með texta og myndum. Afríka 20:20 stendur að útgáfu bókarinnar, en það er félag áhugafólks um málefni Afríku sunnan Sahara.

Þessi bók er annað bindi Afríka sunnan Sahara í brennidepli, en það fyrsta kom út árið 2007. Bókinni er ætlað að efla áhuga og skilning fólks á málefnum Afríku sunnan Sahara. Höfundar fjalla um fjölbreytt viðfangsefni á aðgengilegan hátt með texta og myndum. Allir hafa þeir þekkingu á samfélagsþróun í Afríku sunnan Sahara og reynslu af margvíslegum verkefnum í þessum heimshluta.

Afríka 20:20 stendur að útgáfu bókarinnar, en það er félag áhugafólks um málefni Afríku sunnan Sahara. Þessi bók er annað bindi Afríka sunnan Sahara í brennidepli, en það fyrsta kom út árið 2007.

Útgáfuhóf: Afríka sunnan Sahara  í brennidepli II